Níunda þingi Kennarasambandsins lokið
Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, sleit 9. Þingi KÍ skömmu fyrir hádegi í dag. Þing hófst á miðvikudag.
Um 250 fulltrúar aðildarfélaga KÍ hafa setið þing sambandsins síðan á mánudag. Þingið bar yfirskriftina forsendur menntunar í síbreytilegum heimi. Þinghald fór fram á Hilton Nordica.
Málefnavinna gekk vel og störfuðu níu nefndir í hinum ýmsu málaflokkum.
Afrakstur þingsins þykir góður og búið er að móta stefnu Kennarasambandsins til ársins 2030. Þing var degi styttra en áður en með dugnaði og góðu skipulagi tókst að ljúka öllum málum.
Þingforsetar voru Svandís Svavarsdóttir, fyrrum þingmaður og ráðherra, og Birgir Ármanns, fyrrum þingmaður og forseti Alþingis. Þau stýrðu þingfundum af stakri festu.
Göngum stolt af þingi
„Eins og á öllum góðum þingum höfum við talað mikið, rökrætt og tekist á um skoðanir og sýn til framtíðar. Okkur hefur borið gæfa til þess ná saman um niðurstöðu í öllum málum. Fegurðin við þingin okkar er sú lýðræðislega vinna sem fer fram á fjögurra fresti og skilar okkur stefnuskrá til að vinna eftir næstu fjögur árin. Pakkinn sem við skilum af okkur hér í dag skiptir máli fyrir okkur öll innan Kennarasambandsins því hvert orð í stefnuskjölum og samþykktum getur mótað starfsumhverfi okkar um langa tíð, hvert sem starf okkar er eða hvar við erum við störf. ," sagði Jónína varaformaður þegar hún sleit þingi KÍ.
Jónína gerði yfirskrift þingsins; forsendur menntunar í síbreytilegum heimi að umræðuefni. „
„Yfirskriftin vekur upp hugrenningar um hvernig samfélagið breytist í sífellu, skólarnir breytast og hlutverk kennarans þróast og tekur breytingum. Á sama tíma vitum við öll að megin verkefni okkar er að stuðla að velferð og þroska barna og ungmenna, styrkja sjálfsmynd þeirra, efla félagsfærni, lífsleikni og gagnrýna hugsum um leið og við leggjum grunn að virkri þátttöku þeirra í samfélaginu. Við kennum, við miðlum og virkjum þau í þekkingaleit og stuðlum að farsæld þeirra á markvissan og faglegan hátt."
Jónína þakkaði þingfulltrúum, þingforsetum, riturum og starfsfólki KÍ fyrir vel unnin störf.
„Við skulum ganga stolt af þingi, ekki eingöngu vegna þess að við höfum átt árangursríka daga hér saman, heldur vegna þess að við ætlum að fylgja okkar ákvörðunum, menntun í landinu til heilla," sagði Jónína Hauksdóttir.
Stefnuskjöl, tillögur og ályktanir þingsins verða birtar á vef KÍ í næstu viku.