Ný stjórn FG tekin við stjórnartaumunum
Ný stjórn Félags grunnskólakennara kom saman á fundi í gær, en formleg stjórnarskipti urðu á aðalfundi félagsins sem fram fór í Keflavík um miðjan október.
Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Félags grunnskólakennara fór fram í gær, en formleg stjórnarskipti voru á aðalfundi félagsins sem fór fram í Keflavík fyrr í mánuðinum. Mjöll Matthíasdóttir situr áfram sem formaður og með henni í stjórn eru Anna Guðrún Jóhannesdóttir, Örlygur Þór Helgason, Kolbrún Guðmundsdóttir, Geirlaug Ottósdóttir, Kristín Björnsdóttir og Sigurður Freyr Sigurðsson.
Varafulltrúar í stjórn eru þau Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir, Íris Árný Magnúsdóttir, Hildur Sigfúsdóttir og Hreiðar Oddsson.
Kjörtímabilið er til ársins 2030.
Alls voru 25 ályktanir um skóla- og menntamál afgreiddar á fundinum, þar á meðal ályktanir um skólaforðun og fjarveru nemenda, námsefnisgerð á vegum kennara og niðurstöður skýrslu um álag í skólastarfi.