Ólafur Loftsson sjálfkjörinn formaður FG
Fréttir|13. febrúar 2014
Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, er sjálfkjörinn formaður næsta kjörtímabil, frá aðalfundi 2014 til aðalfundar 2017. Ólafur var einn í kjöri til formanns en frestur til að bjóða sig fram rann út 30. janúar síðastliðinn. Ólafur hefur gegnt embætti formanns frá árinu 2005.
Félag grunnskólakennara heldur aðalfund 8. og 9. maí næstkomandi. Á aðalfundinum verður kosið í stjórn FG og önnur trúnaðarstörf. Skila ber framboðum og tilnefningum vegna trúnaðarstarfa fyrir 8. mars næstkomandi.