Opið er fyrir umsóknir í Endurmenntunarsjóð grunnskóla

Fréttir|31. janúar 2026

Hlutverk Endurmenntunarsjóðs grunnskóla er að veita styrk til endurmenntunar félagsmanna í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ). Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir félagsmenn FG og SÍ geta sótt um framlög úr sjóðnum. Þar á meðal eru grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, háskólar, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir.

Umsóknarfrestur vegna verkefna fyrir skólaárið 2026-2027 er til 4. mars 2026 kl. 14:00.

Umsækjendum ber að sækja um á rafrænum formi á vefsvæði Endurmenntunarsjóðs grunnskóla. Umsóknir sem berast á öðru formi eru ekki teknar gildar.

Ekki er tekið við viðbótargögnum og því verða allar upplýsingar að koma fram í umsókninni sjálfri