Opið hús í leikskólanum Klömbrum

Fréttir|5. maí 2026
Klambrar1
Faghópur um skapandi leikskólastarf

Í gær 4. maí 2026 var opið hús í leikskólanum Klömbrum í Reykjavík. Þar gafst gestum tækifæri á að kynna sér nýuppgert húsnæði leikskólans, en nýlega opnaði leikskólinn að nýju eftir bæði stækkun og miklar endurbætur. Það er óhætt að segja að fallegri leikskóla er vart hægt að finna, því líkar breytingar og allar svo haganlega gerðar. Anna Björk Marteinsdóttir leikskólastjóri og hennar fólk tók vel á móti okkur og gekk með okkur um skólann. Leikskólinn er staðsettur á jarðhæð stúdentagarðanna austan Háteigskirkju og sunnan við Sjómannaskólann. Þarna stóð einu sinni bóndabærinn Klambrar og dregur leikskólinn nafn sitt af honum. Leikskólinn er ekki á sama stað en nógu nálægt til þess að auðvelt sé fyrir börn og starfsfólk að nýta Klambratúnið til útiveru. Á Klömbrum eru núna eftir stækkun 95 börn samtímis á fimm deildum. Deildirnar heita Engi, Dalur, Hlíð, Holt, Teigur og Tún.

Í gær 4. maí 2026 var opið hús í leikskólanum Klömbrum í Reykjavík. Þar gafst gestum tækifæri á að kynna sér nýuppgert húsnæði leikskólans, en nýlega opnaði leikskólinn að nýju eftir bæði stækkun og miklar endurbætur. Það er óhætt að segja að fallegri leikskóla er vart hægt að finna, því líkar breytingar og allar svo haganlega gerðar. 

Anna Björk Marteinsdóttir leikskólastjóri og hennar fólk tók vel á móti okkur og gekk með okkur um skólann.Leikskólinn er staðsettur á jarðhæð stúdentagarðanna austan Háteigskirkju og sunnan við Sjómannaskólann. Þarna stóð einu sinni bóndabærinn Klambrar og dregur leikskólinn nafn sitt af honum. Leikskólinn er ekki á sama stað en nógu nálægt til þess að auðvelt sé fyrir börn og starfsfólk að nýta Klambratúnið til útiveru. Á Klömbrum eru núna eftir stækkun 95 börn samtímis á fimm deildum. Deildirnar heita Engi, Dalur, Hlíð, Holt, Teigur og Tún.

Gildi Klambra eru gleði, vinátta og sköpun

Hugmyndafræði Klambra sem unnið er eftir kallast Klambraandinn og skiptist hann í þrjá liði sem eru Öryggi og traust, Starfsgleði og jákvæðni og svo Gagnrýnin og skapandi hugsun. Börnunum er boðið upp á leikefni sem gefur þeim tækifæri til þess að njóta meðfæddra hæfileika sinna til þess að skapa leikinn sjálf. Því er lítið um hefðbundin leikföng sem fela í sér fyrirframgefnar lausnir. Í dagskipulagi leikskólans er gefin tími fyrir sjálfsprottin leik barna. Það er hlutverk kennarana að skapa aðstæður og námsumhverfi til að efla og dýpka leik barnanna.

Í Klömbrum er listakona sem starfar í listasmiðjunni og má svo sannarlega sjá afrakstur vinnu hennar með börnunum víða um skólann. Einnig er þar starfandi tónlistarkennari og er tónlistarstarf hluti af daglegu starfi inni á öllum deildum leikskólans. Auk þess kemur tónlistarkennari inn á hverja
deild og sér um tónlistarstund með börnunum.

Við óskum starfsfólki Klambra innilega til hamingju með frábærann leikskóla. 

Við tókum að vanda fullt af ljósmyndum sem sjá má hér.