Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Rannsóknasjóð KÍ

Nú er hægt er að sækja um styrk í Rannsóknasjóði KÍ fyrir skólaárið 2027-2028. Frestur til að skila inn umsókn er til og með 8. febrúar á næsta ári.
Opið er fyrir umsóknir um styrki í Rannsóknasjóð Kennarasambands Íslands. Þetta er áttunda árið sem sjóðurinn er starfræktur og eru sjö milljónir króna til úthlutunar fyrir skólaárið 2026-2027. Rannsóknasjóður veitir styrki til vel greindra rannsókna sem beinast að daglegu starfi félagsfólks, viðfangsefnum sem spretta úr daglegri önn skólastarfsins, breytilegu hlutverki menntunar, nýjum viðfangsefnum, áherslum og starfsaðferðum.
Stjórn sjóðsins setur ávallt fram áherslusvið fyrir hvert skólaár og að þessu sinni eru sviðin fimm talsins.
Áherslusvið 2026-2027
- Daglegt starf kennara, starfsskilyrði og faglegt sjálfstæði
- Nýliðun, starfsþróun og framtíð kennarastéttarinnar
- Rannsóknir á listgreinakennslu, verkgreinakennslu eða iðnnámi
- Jafnrétti, inngilding og farsæld í skólastarfi
- Þróun kennsluhátta, nýsköpun, tækniþróun og breytt hlutverk menntunar
Félagsfólk sem býr að hugmynd að rannsókn sem rúmast innan áherslusviðanna er hvatt til að senda inn umsókn.
Umsóknarferlið
Frestur til að skila inn umsókn um styrk rennur út klukkan tólf á hádegi mánudaginn 8. febrúar 2027.
Ráðgert er að úthlutun styrkja fari fram fimmtudaginn 25. febrúar 2027.
Til að sækja um styrk í Rannsóknasjóð KÍ þarf að fylla út umsóknareyðublað. Umsækjandi, eða ábyrgðarmaður umsóknar, ef umsækjendur eru fleiri en einn, sækir í kjölfarið um styrk í Rannsóknasjóð KÍ á Mínum síðum og hleður upp umsóknareyðublaði og ferilskrá/m umsækjanda/enda með umsókn, ásamt öðrum fylgigögnum, ef við á.
Sjóðurinn hóf að veita styrki árið 2019 og hafa 37 verkefni hlotið styrk. Hægt er að kynna sér verkefnin á síðu Rannsóknasjóðs.
