Orlofssjóður kynnir fyrirkomulag komandi sumars

Opið verður fyrir umsóknir um vikuleigur sumarsins 17. febrúar til 9. mars og umsóknir um dagsleigur frá 16. mars.
Opið verður fyrir umsóknir um vikuleigur sumarsins 17. febrúar til 9. mars og umsóknir um dagsleigur frá 16. mars.
Nú styttist í opnun fyrir umsóknir um vikuleigur sumarið 2026. Opið verður fyrir umsóknir frá 17. febrúar til 9. mars og skiptir ekki máli hvenær á þessu þriggja vikna tímabili umsókn berst. Það er því enginn sem þarf að sitja sveittur við tölvuna á opnunardegi.
Punktastaða ræður því hver fær úthlutað. Það er að segja, af þeim sem sækja um tiltekna viku í tiltekinni eign, þá er það sá sem á flesta punkta af þeim sem fær vikuna.
Við ráðleggjum þeim sem eiga lítið af punktum að sækja frekar um í júní og ágúst þar sem við sjáum að líkur á úthlutun fyrir þann hóp eru meiri en í júlí, sem er að sjálfsögðu langvinsælasti mánuðurinn.
Opnað verður svo fyrir bókanir á dagsleigum klukkan 18:00 mánudaginn 16. mars. Þar gildir bókunarfyrirkomulagið fyrstur kemur, fyrstur fær samkvæmt eftirfarandi:
Dags
klukkan
hverjir
Mánudagur 16. mars
18:00
Félagar sem eiga 300 punkta eða fleiri
Þriðjudagur 17. mars
18:00
Félagar sem eiga 100 punkta eða fleiri
Miðvikudagur 18. mars
18:00
Félagar sem eiga 1 punkt eða fleiri
Fimmtudagur 19. mars
18:0
Félagar sem eiga 0 punkta eða fleiri, ásamt félögum í FKE sem eiga punkta.