Orlofssjóður opnar fyrir bókanir á dagsleigum

Fréttir|13. mars 2026

Bókanir verða opnaðar í skrefum frá og með mánudeginum 16. mars. Félagsfólk er hvatt til að fylgjast með.

Orlofssjóður KÍ mun á mánudag, 16. mars, opna fyrir bókanir á dagsleigum og þeim vikum sem ekki gengu af í úthlutun vikuleiga. Fyrirkomulag opnunar er byggt á punktastöðu félagsfólks. Dagsleigur gengu áður undir nafninu flakkarar. 

Opnað verður í skrefum fyrir þessar bókanir

Dags

Punktastaða

16. mars – mánudagur kl. 18:00

félagsmenn sem eiga 300 punkta eða fleiri geta byrjað að bóka

17. mars – þriðjudagur kl. 18:00

félagsmenn sem eiga 100 punkta eða fleiri 

18. mars – miðvikudagur kl. 18:00

félagsmenn sem eiga 1 punkt eða fleiri geta byrjað að bóka

19. mars – fimmtudagur kl. 18:00

Opnað endanlega fyrir alla – einnig félaga í FKE og öryrkja sem eiga punkta. 

Vaktsíminn opinn

Vakin er athygli á því að frá mánudegi til miðvikudags (16. til 18. mars) verður Orlofssjóður með opinn síma milli 18 og 19. Númerið er 595 1192. 

Um fyrri úthlutun

Umsóknarfrestur um úthlutun vikuleigu í orlofshúsum Orlofssjóðs KÍ sumarið 2026 rann út á hádegi  9. mars.

Þeir félagar sem fengu úthlutaða viku hafa til hádegis mánudaginn 16. mars til að staðfesta bókunina með greiðslu.

Ef greiðsla hefur ekki borist þá, missir viðkomandi af úthlutaðri viku.

Orlofsvikur, sem félagsmenn greiða ekki fyrir, verður hægt að bóka þegar opnað verður fyrir dagsleigur.