Óskað er eftir framboðum
Fréttir|19. mars 2014
Þessa dagana er leitað að áhugasömum félagsmönnum til að sitja í Samráðsnefnd FSL, en þeir eru tengiliðir við stjórn og jafnframt trúnaðarmenn. Kjósa skal á eftirtöldum svæðum einn aðalmann og einn varamann.
- Reykjavík
- Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær og Kjós
- Suðurnes
- Suðurland og Vestmannaeyjar
- Vesturland og austur Barðastrandasýsla
- Vestfirðir utan austur-Barðastrandasýslu og Strandabyggðar.
- Norðurland vestra að Fjallabyggð ásamt Strandabyggð.
- Norðurland eystra frá Fjallabyggð að Bakkafirði.
- Austurland frá Bakkafirði til Staftárhrepps.
Framboðum skal skila til formanns Framboðsnefndar, Ingibjargar Stefánsdóttur fyrir 25. mars nk. Netfang hennar er ingibjörg@arborg.is
Ath. að fyrir aðalfundi liggur tillaga um að fjölga fulltrúum í Reykjavík og Kraganum. Þar verði í framtíðinni tveir aðalfulltrúar og einn til vara. Ástæðan er að á þessum svæðum eru félagsmenn fleiri en 100. Verði sú tillaga samþykkt á aðalfundi verða þessir viðbótarfulltrúar kjörnir sérstaklega í framhaldi.