Óttinn undir regnboganum

Fréttir|7. ágúst 2026
Kristina Shvedenko 06Mutac6r7q Unsplash (1)
Pistill

Hinsegin andúð hefur aukist í samfélaginu og er nýjasta skemmdarverk á tröppum Grafarvogskirkju áþreifanleg áminning þar um. Slíkum skemmdarverkum er ætlað að auka hræðslu ...

Regnbogafánar blakta við hún og gleðin er við völd en undir niðri kraumar ótti, ótti vegna aukinnar áreitni, ótti vegna fordóma, ótti vegna bakslags. Hinsegin andúð hefur aukist í samfélaginu og er nýjasta skemmdarverk á tröppum Grafarvogskirkju áþreifanleg áminning þar um. Slíkum skemmdarverkum er ætlað að auka hræðslu, óöryggi og kvíða ákveðinna hópa fólks í samfélaginu.

Hinsegin andúð, þar sem veruleiki, tilvera og réttindi trans einstaklinga eru smættuð niður í hugmyndafræði, hefur einnig borist úr ræðustóli Alþingis. Þeim málflutningi er einmitt ætlað að móta skoðanir og viðhorf hóps fólks sem móttækilegur er fyrir slíkri andúð. Notkun tungumáls í pólitískum tilgangi með skaðlegri og hættulegri orðræðu er ekki ný af nálinni og hefur verið nýtt áður.

Nærsýnishugmyndafræði

En um hvað ræðir? Samkvæmt orðabók er lýsingarorðið trans notað um fólk sem hefur kynvitund sem samræmist ekki því kyni sem því var úthlutað við fæðingu. Það er jafnframt regnhlífarhugtak yfir afar fjölbreyttan hóp fólks. Hugtakið hugmyndafræði vísar hins vegar til tiltölulega heildstæðs kerfis hugmynda, gilda og sjónarmiða sem endurspeglar ákveðin samfélagsleg eða pólitísk viðhorf. Samsetning þessara tveggja orða í transhugmyndafræði er því sérlega villandi. Með henni er gengið út frá því, án rökstuðnings, að kynvitund og tilvist fjölbreytts hóps fólks byggist á einu samræmdu hugmyndakerfi með sameiginleg gildi, markmið og ásetning. Gengur þetta upp?

Búum til orðið nærsýnihugmyndafræði sem virðist við fyrstu sýn vera merkingarbært. Við vitum hvað nærsýni er, en með því að bæta orðinu hugmyndafræði aftan við verður til ímyndað fyrirbæri; sú hugmynd að nærsýnt fólk, augnlæknar, sjóntækjafræðingar og þau sem styðja aðgengi að gleraugum fylgi einu sameiginlegu hugmyndakerfi. Ef við ræðum svo endurtekið um áhrif nærsýnihugmyndafræðinnar á börn, að hún sæki inn í skólana og að börn séu hvött til að efast um sjón sína breytist sjónarhornið og við förum að huga að áhrifum þessa í stað þess að efast um tilvist þessarar tilteknu hugmyndafræði og óska eftir rökstuðningi. Fjarstæðan er augljós.

Afmennskun

Afmennskandi hugtakanotkun er vel þekkt aðferð í pólitískri orðræðu. Hún felst í því að orðavalið er markvisst fært frá manneskjunni sjálfri, reynslu hennar, réttindum og aðstæðum, yfir í ópersónulegt og gjarnan niðrandi heiti eða hugtak. Einstaklingar hætta þá að birtast sem fjölbreyttar manneskjur en verða í orðræðunni að einsleitum massa, vandamáli eða ógn sem samfélagið þurfi að verjast.

„Afmennskandi hugtakanotkun er vel þekkt aðferð í pólitískri orðræðu.“

Grófustu dæmin úr sögunni eru áróðursherferðir þar sem heilir hópar fólks voru kallaðir meindýr. Slíkt orðaval var ekki tilviljun. Með því var reynt að vekja viðbjóð og ótta, skapa skýr skil milli „okkar“ og „hinna“ og veikja siðferðilegar hömlur gegn mismunun og ofbeldi. Þegar hópur fólks hefur fyrst verið skilgreindur sem samfélagsmein verður auðveldara að réttlæta að það sé útilokað, svipt réttindum eða fjarlægt. Þetta er afar sláandi dæmi sem á ekki við hér en við verðum að læra af sögunni.

Lærdómurinn er sá að við þurfum að þekkja þessa pólitísku notkun á tungumálinu, stigmögnun orðræðunnar og þau áhrif sem úthugsað orðaval getur haft. Afmennskun getur byrjað á orðalagi sem virðist við fyrstu sýn fræðilegt, hlutlaust eða jafnvel saklaust. Hér leikur hugtakið hugmyndafræði aðalhlutverk. Fólk er fyrst fært úr flokki manneskja yfir í flokk hugmynda eða vandamála. Því næst er þessum tilbúna flokki eignaður sameiginlegur ásetningur og er hann sagður „sækja inn“, „taka yfir“, „ógna“, „smita“ eða „innræta“. Að lokum er pakkað í vörn gegn hinu ímyndaða afli, sem er þá um leið talin réttlæting á andstöðu við hóp fólks.

Hugtakið transhugmyndafræði getur einmitt gegnt slíku hlutverki. Með því er athyglinni beint frá trans fólki sem manneskjum af holdi og blóði og að óhlutbundnu, órökstuddu fyrirbæri sem hægt er að lýsa sem innrætingu, ágengu og jafnvel hættulegu. Málflytjandi getur um leið firrt sig ábyrgð, sagst aðeins vera að gagnrýna „hugmyndafræði“, þótt gagnrýnin beinist í reynd að tilvist, trúverðugleika, sýnileika og réttindum trans fólks. Þannig verður mögulegt að tala gegn hópi fólks án þess að nefna beinlínis að það sé hópurinn sem andstaðan beinist að.

„Fólk er fyrst fært úr flokki manneskja yfir í flokk hugmynda eða vandamála.“

Endurtekningin skiptir hér líka miklu máli. Þegar óljóst, órökstutt og gildishlaðið hugtak er notað aftur og aftur verður það smám saman kunnuglegt. Fjölmiðlar, stjórnmálafólk og jafnvel andmælendur geta síðan tekið orðið upp og þannig óviljandi eða viljandi styrkt þá forsendu að til sé eitt samræmt afl sem nefnist „transhugmyndafræði“. Umræðan snýst þá ekki lengur um hvort hugtakið eigi við rök að styðjast heldur hvernig samfélagið eigi að verjast því.

Kjarni málsins

Einstaklingurinn hverfur úr orðræðunni og eftir stendur gildishlaðið órökstutt og stundum illskiljanlegt hugtak. Fjölbreyttur hópur fólks verður að einsleitum flokki, flokkurinn að hugmyndakerfi og hugmyndakerfið að ógn. Markmiðið eða áhrifin geta verið að etja samfélagshópum saman, vekja ótta og gera skerðingu á réttindum eins hóps ásættanlegri í augum annars. Þess vegna skiptir máli að bregðast við slíkri orðræðu áður en hún verður svo hversdagsleg að við hættum að horfa gagnrýnið málið og samþykkjum málflutninginn athugasemdalaust.

Þegar við skiljum og þekkjum mátt tungumálsins, afleiðingar orðavals og stigmögnunar orðræðu, getum við fyrst hlustað gagnrýnið á vafasaman málflutning og greint rétt frá röngu.

Verum vakandi og meðvituð.

Til hamingju með Hinsegin daga!

No Revisions Samma7cunwk Unsplash

Þegar við skiljum og þekkjum mátt tungumálsins, afleiðingar orðavals og stigmögnunar orðræðu, getum við fyrst hlustað gagnrýnið á vafasaman málflutning og greint rétt frá röngu.

Byggt á: