Rafrænt félagsskírteini komið í gagnið

Félagsfólk KÍ getur nú sótt um rafrænt félagsskírteini og hlaðið niður í farsímaveski.
Nú er hægt að nálgast rafrænt félagsskírteini KÍ og hlaða því beint í farsímaveskið. Skírteinið er að finna á mínum síðum og er í boði bæði fyrir iPhone- og Android-síma.
Aðildarfélag félagsmannsins kemur fram á skírteininu. Aðild að félögum KÍ fylgja ýmis fríðindi, afslættir og tilboð sem hægt er að kynna sér á Orlofsvefnum.
Við hvetjum félagsfólk til að skoða vel þau fjölbreyttu kjör sem í boði eru. Linda Björk Pálsdóttir framkvæmdastjóri Orlofssjóðs segir virkilega ánægjulegt að rafræna félagsskírteinið sé komið í gagnið: „Svo er einnig gaman að segja frá því að nú styttist í að Orlofssjóður opni nýjan bókunarvef þar sem enn verður aukið við framboð afslátta.“
Dæmi um afsláttarkjör
- 15% afsláttur af aðalskoðun hjá Tékklandi og Aðalskoðun
- 20% afsláttur hjá Hertz bílaleigu
- 10% afsláttur hjá Fitness sport
- 30% afsláttur hjá Home & you