Rétt málsmeðferð – ánægðir starfsmenn

Fréttir|12. mars 2014

Um 140 skólastjórnendur sóttu námskeið í ferli ráðningarmála og uppsagna á Grand Hóteli í gær og fyrradag. Um er að ræða námskeið fyrir skólastjórnendur þar sem fjallað er um ýmsar hliðar starfsmannastjórnunar og starfsmannahalds. Námskeiðið verður haldið víða um land á næstu vikum. 

Námskeiðið er á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga, Skólastjórafélags Íslands, Félags stjórnenda leikskóla og skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.

Námskeiðið er ætlað skólastjórum í leik- og grunnskólum og markmið þess er meðal annars að kenna hvernig skólastjórnendur geta brugðist við af öryggi og beitt meginreglum stjórnsýsluréttar þegar það á við. Fjallað er um starfsmannamál, hvernig leiðbeina skuli starfsmanni í starfi, hegðun og samskipti.

Leiðbeinendur voru Sólveig B. Gunnarsdóttir, lögfræðingur hjá SÍS, Erna Guðmundsdóttir, lögfræðingur KÍ, og Karl Frímannsson, þróunarstjóri starfsmannamála Akureyrarbæjar.
Námskeiðin verða sem fyrr segir endurtekin víða um land á næstunni. Námskeiðsgjaldið er 6.000 krónur. 

Námskeið framundan:

Reykjanes, Duushúsum, 17. mars.
Vesturland, Hótel Borgarnesi, 18. mars.
Norðurland og nágrenni, Brekkuskóla á Akureyri, 24. mars.
Suðurland, Hótel Selfossi 25. mars.
Austurland, Icelandair Hóteli, Egilsstöðum, 7. apríl.
Reykjavík, síðasta námskeiðið er ætlað þeim sem hafa ekki getað sótt fyrri námskeið, 8. apríl.