Reynt að semja um helgina
Fréttir|14. mars 2014
Á samningafundi í dag, 14. mars, ákváðu samninganefndir FF og FS og samninganefnd ríkisins að nota helgina til að reyna að ná saman um nýjan kjarasamning áður en boðað verkfall í framhaldsskólum hefst á mánudaginn kemur.
Kröfur FF og FS snúast um leiðréttingar á launum kennara, náms- og starfsráðgjafa og stjórnenda í framhaldsskólum, og lagfæringar á rekstri skólanna svo þeir valdi hlutverkum sínum.
Einnig er rætt um skólastarfsbreytingar í samræmi við framhaldsskólalögin frá 2008 en framkvæmd þeirra hefur frestast að hluta vegna efnahagsaðstæðna. Lögin eiga að taka fullt gildi haustið 2015. Samningafundir um helgina munu leiða í ljós hvort kjarasamningar takast án átaka.