Ríkur vilji til samtals og samstarfs
Forystusveit KÍ ræddi skóla- og menntamál við borgarstjóra og fulltrúa skólamála hjá borginni.
Ríkur vilji til samtals og samstarfs
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur tók á móti fulltrúum Kennarasambands Íslands í ráðhúsinu á föstudag. Með henni sátu fulltrúar borgarinnar sem vinna að skóla- og menntamálum.
Fundaherferð Kennarasambandsins, Blásum byr í seglin, er í fullum gangi. Fulltrúar KÍ funduðu á föstudaginn með borgarstjóra og fulltrúum skóla- og tómstundaráðs og leikskóla- og daggæsluráðs.
Aðspurður um fundinn sagði Magnús formaður KÍ: „Það var mikilvægt að ná fundi með borgarstjóra, sviðsstjóra og formönnum ráða á vegum Reykjavíkurborgar og hann var hreinskiptinn og góður. Sérstakt ánægjuefni er þó að ákveðið var að kynningin á verkefninu myndi líka fá tíma skóla- og frístundaráðs, sem og leikskóla- og daggæsluráðs. Það sýnir tvennt, það að þetta form samskipta hefur hljómgrunn á meðal kjörinna fulltrúa sem og það að vilji til samtals og samstarfs er ríkur hjá Reykjavíkurborg. Það eru frábærar fréttir!“