Sálfræðiþing á laugardag

Fréttir|13. mars 2014

Sálfræðingafélag Íslands efnir til sjötta sálfræðingsins á laugardag, 15. mars, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta fyrirlestra og málstofur. Ásgeir Sigurgestsson sálfræðingur flytur hátíðarræðu í tilefni þess að félagið fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir. 

Málstofa um sálfræðiþjónustu við framhaldsskólanema fer fram síðdegis. Meðal frummælenda verða Kristrún Birgisdóttir sem fjallar um brottfall úr framhaldsskólum, Hákon Sigursteinsson fjallar um hverfavædda sálfræðiþjónustu við FB og Margrét Birna Þórarinsdóttir fjallar um leiðir til að bregðast við brottfalli úr framhaldsskólum. 

Dagskrá þingsins er sem fyrr segir afar fjölbreytt og má nefna fyrirlestra um nýjungar í greiningu á heilabilun og ADHD, kynhegðun barna og ungmenna, mat á árangri hópmeðferðar við félagskvíða unglinga og heilaáverka á ungum íslenskum börnum svo fáein dæmi séu tekin.