Samstaða launafólks sjaldan mikilvægari en nú
„Orðræða um skólakerfið þarf að byggjast á virðingu fyrir því verkefni sem þar fer fram," sagði Magnús Þór Jónsson, formaður, þegar hann setti níunda þing Kennarasambandsins í morgun.
Samstaða launafólks skiptir máli og hefur sjaldan verið mikilvægari en nú. Þar vil ég nefna sérstaklega samstarfið við BSRB og BHM sem hefur styrkt stöðu opinbers launafólks í heild. Þegar við stöndum saman getum við haft raunveruleg áhrif og mótað þróunina sjálf," sagði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, þegar hann ávarpaði vel á þriðja hundrað félaga í KÍ á setningu þings sambandsins í morgun.
Magnús Þór vék í ræðu sinni að sameiginlegu átaki KÍ og BSRB gegn áætlun fjármálaráðherra um afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna. Hann sagði áformin fela í sér afturhvarf í samskiptum launafólks og yfirvalda þar gengið er framhjá samstarfi milli aðila þegar kemur að réttindum launafólks.
„Það er sannarlega hlutverk stéttarfélaga að standa saman í slíkum aðstæðum og gera allt sem í okkar valdi stendur til að forða því sjálfsmarki á leikvelli stéttarfélaga sem það yrði að afnema gula spjaldið og ráðningarvernd okkar félagsfólks á tímum þar sem mikilvægt er að fjölga kennurum og þétta raðirnar. Hér er ekki verið að bæta kerfi, heldur skerða réttindi!" sagði Magnús.
Skemmst er frá því að segja að ávarp formannsins féll vel í kramið meðal þingfulltrúa og fékk hann standandi lófatak í lokin.
Orðræða og virðing
Magnús kom víða við í ræðu sinni og fjallaði meðal annars um mikilvægi þess að standa vörð um allar skólagerðir og tryggja að kerfið í heild sé sterkt. Það verði þó ekki gert nema með virku samtali í samfélaginu.
„Orðræða um skólakerfið þarf að byggjast á virðingu fyrir því verkefni sem þar fer fram, það þarf vissulega að horfa til þess að rýna til gagns en það er ekki síður mikilvægara að lyfta upp því fjölmarga á vettvangi barnanna okkar í öllum skólagerðum sem vel er gert. Við viljum gera betur en gerum líka þá kröfu til stjórnmálanna að þau kynni sér ólíkar hliðar skólastarfs og líti upp úr excelskjalinu eða sambærilegum heimildum sem er oft ætlað að setja upp mynd af allt öðru en því sem við þekkjum úr skólunum okkar," sagði Magnús.
Langtímasýn og þolinmæði
Fram kom í ræðu Magnúsar að á liðnu fjögurra ára kjörtímabili hafa fjórir gegnt embætti mennta- og barnamálaráðherra – og það sé veruleiki sem hafi áhrif enda komi hver ráðherra með sínar áherslur. Stöðugleiki í stjórnmálum skiptir máli, sagði Magnús, ekki vegna stjórnmálanna heldur barnanna og þess mikilvæga starfs sem innt er af hendi í skólum landsins á degi hverjum.
„Skólakerfið þarf langtímasýn. Það þarf þolinmæði. Það þarf ákvarðanir sem lifa lengur en eitt kjörtímabil og rödd félagsfólks KÍ þarf að vera öflug við borðið eða borðin þar sem pólitískar ákvarðanir eru teknar," sagði Magnús og bætti við: „Ef árangur á að nást með nemendum okkar er mikilvægt að fjárfesta í kennurum og skólafólki og að samfélagslegt samtal okkar við aðra hagaðila menntunar snúist um það að móta framtíðina saman. Þetta eru ekki slagorð sem hanga í loftinu, þetta eru stefnumarkandi skilaboð um það hvernig við viljum sjá íslenskt samfélag þróast og hvernig við ætlum að taka þátt í að móta það."
Magnús hvatti jafnframt félagsfólk KÍ til að taka þátt í menntapólitík nú þegar stutt er í að kosið verði til sveitarstjórna. „Ef við setjum ekki skólamál á dagskrá þá gera aðrir það fyrir okkur með töluvert minni þekkingu en við höfum að bera."
Grunnstoðir verði styrktar
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra ávarpaði þing KÍ og fór um víðan völl í ræðu sinni. Hún hóf ræðu sína á að þakka kennurum fyrir framlag sitt til samfélagsins og sagði þá í hópi mikilvægustu fagstétta. Ráðherra boðaði einnig ýmsar breytingar, svo sem að endurskoða einkunnakerfi grunnskóla, fækkka börnum í bekkjardeildum, fjölga kennslustundum og gera byltingu í útgáfu námsbóka og námsefnis.
„Virðing við kennara felst ekki aðeins í fallegum orðum. Virðing felst í því að horfast í augu við hlutina og að við séum tilbúin að setja spurningarmerki við kerfið og breyta því ef við finnum betri leiðir. Við eigum að tala hreint út því það er börnunum okkar fyrir bestu."
Ráðherra sagði árangur íslenskra barna hafa versnað og ekki standast alþjóðlegan samanburð. „Það er ýmislegt og annað sem bendir til þess að það þurfi að styrkja grunnstoðir menntakerfisins okkar,“ sagði Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra.
Aðför að launafólki
„Sameiginleg barátta okkar snýst ekki lengur bara um að bæta kjör. Hún snýst líka um að verja þau réttindi sem við höfum þegar náð," sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, í ræðu sinni við þingsetninguna.
Hún sagði viðsemjendur telja sig eiga tilkall til réttinda launafólks – vegna þess eins að þeir væru að tala lítil skref í átt að leiðréttingu í áralöngu launamisrétti kynjanna.
„Áform ríkisstjórnarinnar um afnám áminningarskyldu er dæmi um það. Við þekkjum engin dæmi þess að ríkisstjórn Íslands skerði réttindi einhliða. Og nú eru sveitarfélögin farin að hugsa sér gott til glóðarinnar, þau hafa þegar sýnt vilja til að gera slíkt hið sama," sagði Sonja og bætti við að svo virtist sem menntamálaráðherra ætlaði sér að auka vinnutíma kennara.
„Enn á ný virðast viðsemjendur okkar ekki ætla að virða þær leikreglur sem gilda á vinnumarkaði, – né að þetta mál eigi raunverulega heima á kjarasamningsborðinu. Þess í stað vilja þau fara fram hjá öllum reglunum og hrifsa til sín réttindi okkar," sagði Sonja og bætti við að þessi áform væru aðför að launafólki og íslenskri verkalýðshreyfingu.
Þá sagði hún staðreynd að starfsfólk í menntakerfinu og velferðarþjónustu hafi haldið kerfinu gangandi við aðstæður sem fáir myndu sætta sig við til lengdar. Lausnin við því fælist ekki í meiri niðurskurði.
„Lausnin felst í því að endurhugsa tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga og skipta kökunni með réttlátari hætti," sagði formaður BSRB.
Tveir erlendir gestir ávörpuðu þingheim. Þetta voru Elmer Jevers, framkvæmdastjóri ETUCE, og Christer Holmlund, framkvæmdastjóri NLS – norrænu kennarasamtakanna.