Samstaðan er öflugasta verkfærið

Fréttir|1. maí 2026
Pistill

„Réttindi okkar, kjör og starfsaðstæður hafa ekki fallið af himnum ofan – þau eru afrakstur langrar og oft harðrar baráttu," skrifar Magnús Þór Jónsson, í tilefni þess að í dag er baráttudagur verkalýðsins.

Kæru félagar!

1. maí er ekki bara dagsetning í dagatalinu heldur lifandi áminning um það sem launafólk hefur þurft að berjast fyrir í gegnum tíðina. Réttindi okkar, kjör og starfsaðstæður hafa ekki fallið af himnum ofan – þau eru afrakstur langrar og oft harðrar baráttu. Sá grunnur sem við stöndum á í dag er byggður af fólki sem hafði kjark til að standa upp, krefjast sanngirni og berjast fyrir virðingu í starfi. Þessi dagur snýst hins vegar ekki síður um nútímann og framtíðina, því baráttan tekur sífellt á sig nýjar myndir.

Undanfarin ár hafa verið viðburðarík í starfi Kennarasambands Íslands og við höfum náð raunverulegum áföngum. Kjarasamningar ársins 2025 voru tímamót, ekki síst vegna þess að í fyrsta sinn í sögu KÍ var samið fyrir allt félagsfólk í einu. Það var stórt skref, byggt á virku samtali við stjórnir og samninganefndir aðildarfélaganna sjö.

„Þessi dagur snýst hins vegar ekki síður um nútímann og framtíðina, því baráttan tekur sífellt á sig nýjar myndir.“

Við mátum það svo að ein sterk rödd KÍ væri mikilvæg til að ná launagreiðendum í alvöru að borðinu til að ræða það að jafna laun okkar sérfræðinga við aðra sambærilega sérfræðinga. Það tókst, þó að vissulega þyrfti einnig að koma til aðgerða til að leggja áherslu á mikilvægi starfa okkar, aðgerðir sem sýndu sannarlega að kennarar voru tilbúnir að leggja mikið á sig fyrir málstað sinn, sem er auðvitað líka málstaður menntunar og í raun uppbygging framtíðar samfélagsins.


Stærsti lærdómurinn úr þessari vegferð er skýr: samstaðan skiptir öllu. Þegar á reyndi stóð félagsfólk saman, tók þátt og studdi við sameiginleg markmið. Sú samstaða var lykillinn að árangrinum og verður það áfram. Við erum þó ekki komin á áfangastað. Við höfum tekið fyrsta skrefið í átt að því að jafna kjör kennara við aðrar sérfræðistéttir, en sú vegferð er rétt að hefjast. Fram undan er vinna sem krefst festu, þolinmæði og skýrra krafna um betra starfsumhverfi og sanngjarna launasetningu.

Kjarni 1. maí er einfaldur: við veljum hvort við stöndum saman eða sundrumst. Reynslan sýnir að samstaðan skilar árangri. Hún er öflugasta verkfærið sem við eigum.

Kæru félagar, við vitum hvað virkar. Nú snýst verkefnið um að halda áfram á þeirri braut. Þannig tryggjum við betri kjör og sterkari framtíð fyrir skólakerfið og samfélagið allt.

Gleðilegan baráttudag!