Samstaðan virkar, við höfum séð það

Fréttir|2. maí 2026
01.05.2026 Akureyri 1 Maí Hátíðarhöldin 2106

Kennarasambandið var í stóru hlutverki á hátíðarhöldum 1. maí á Akureyri. Formaður KÍ hélt hátíðarræðuna þetta árið og fleiri komu við sögu.

„Við vitum það – að þegar við stöndum saman að þá hreyfum við við hlutum. Það er engin tilviljun að saga verkalýðshreyfingarinnar er saga samstöðu. Hún er saga fólks sem neitaði að taka við „grautnum“ sem því var úthlutað og sagði: við eigum meira skilið. Sem er nákvæmlega sama verkefni sem við stöndum frammi fyrir í dag," sagði Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, í hátíðarræðu sem hann flutti á Ráðhústorginu á Akureyri, 1. maí 2026. 

Magnús kom víða við í ræðu sinni, fjallaði um verðbólgu, vaxtaokur og bakslag í jafnréttisbaráttunni svo nokkur dæmi séu nefnd. „Á sama tíma og heimilin í landinu berjast við hækkandi vexti, enn meiri matarkostnað og stöðugt meiri húsnæðiskostnað – þá sjáum við fyrirtæki skila methagnaði og fjármagnið fitna á bankareikningum þeirra sem þau leiða og eiga. Þetta er ekki tilviljun. Þetta er kerfi, sem ekki er byggt upp fyrir launafólk, sagði Magnús Þór í ræðu sinni.

Lokaorð Magnúsar voru hvatning til fundarfólks: „Samstaðan virkar, við höfum séð það og við höfum lifað það. Verkefnið fram undan er skýrt og í raun einfalt. Við höldum baráttunni áfram. Saman. Þannig náum við árangri fyrir launafólk og heimilin í landinu."

Kennarasambandið gegndi veigamiklu hlutverki í hátíðarhöldunum norðan heiða; auk Magnúsar flutti Erla Rán Kjartansdóttir, formaður Félags kennara á Norðurlandi eystra, ávarp stéttarfélaganna og Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara, var kynnir á útifundinum. Þá áttu menntaskólarnir tveir sviðið en félagar í Leikfélagi Menntaskólans á Akureyri sýndu atriði úr söngleiknum Ljóska í gegn og félagar úr Leikfélagi Verkmenntaskólans á Akureyri sýndu atriði úr leikritinu Ronja ræningjadóttur. 

Stemning í Reykjavík

Félagsfólk KÍ lét heldur ekki sitt eftir liggja og fylkti liði í kröfugöngu dagsins í Reykjavík. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, flutti hátíðarræðuna við góðar undirtektir. 

„Við munum standa vörð um velferð almennings af festu og ábyrgð. Við munum ekki sætta okkur við að heilbrigðisþjónusta, menntun, húsnæðisstuðningur og félagslegt öryggi verði skert í nafni aðhalds eða skammtímahugsunar. Þessi réttindi voru unnin með baráttu, þau verða varin með samstöðu. Því styrkur okkar er velferð allra," sagði í sameiginlegu ávarpi fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, sem var flutt á Ingólfstorgi. 

Þá var afburðagóð mæting í Opið hús hjá KÍ. Um tvö hundruð félagar og fjölskyldur þáðu kaffi og kökur – og áttu góða stund með kollegunum. 

 

Svipmyndir frá hátíðarhöldum í Reykjavík og á Akureyri