Síðustu forvöð að sækja um vikuleigu

Umsóknarfrestur rennur út á hádegi á mánudag.
Félagsfólk sem hefur áhuga á að sækja um vikuleigu í eignum Orlofssjóðs KÍ sumarið 2026 þarf að hafa hraðar hendur því umsóknarfrestur rennur út á hádegi mánudaginn 9 mars.
Það er því tilvalið að setja niður um helgina og skoða sumarleyfisplön með fjölskyldu og vinum.
Það fá allir tilkynningapóst á mánudaginn hvort heldur sem það er staðfesting á úthlutun eða neitun.
Þeir félagar sem fá úthlutað hafa þá eina viku til að tryggja sér úthlutunina með greiðslu. Ef greiðsla berst ekki lendir sú úthlutun aftur í pottinum og opnast fyrir bókanir á henni með dagsleigum.
Opnað verður fyrir bókanir á dagsleigum klukkan 18:00 mánudaginn 16. mars.
Þar gildir bókunarfyrirkomulagið fyrstur kemur, fyrstur fær samkvæmt eftirfarandi:
Dags
Klukkan
Hverjir
Mánudagur 16. mars
18:00
Félagar sem eiga 300 punkta eða fleiri
Þriðjudagur 17. mars
18:00
Félagar sem eiga 100 punkta eða fleiri
Miðvikudagur 18. mars
18:00
Félagar sem eiga 1 punkt eða fleiri
Fimmtudagur 19. mars
18:00
Félagar sem eiga 0 punkta eða fleiri ásamt félögum í FKE sem eiga punkta.