Sjö bjóða sig fram í stjórn FT

Fréttir|2. mars 2026

Stjórnarkjör fer fram í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum í næstu viku.

Sjö félagar í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) bjóða sig fram til setu í stjórn félagsins á næsta kjörtímabili, 2026-2030. 

Frestur til að bjóða sig fram rann út á hádegi í dag. 

Eftirtalin eru í framboði

  • Dagný Arnalds, Landakotsskóla
  • Edda Austmann, Tónskólanum í Reykjavík
  • Ólöf Sigursveinsdóttir, Tónskóla Sigursveins / Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
  • Sandra Rún Jónsdóttir, Tónlistarskóla Rangæinga
  • Sóley Þrastardóttir, Tónlistarskólanum á Egilsstöðum
  • Þórarinn Stefánsson, Tónlistarskólanum á Akureyri
  • Örlygur Benediktsson, Tónlistarskóla Árnesinga

Allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsfólks í FT fer fram í næstu viku, nánar tiltekið dagana 9. til 12. mars. Stjórn FT er skipuð formanni, fjórum aðalfulltrúum og þremur til vara. 

Ný stjórn tekur formlega við völdum á aðalfundi FT þann 11. apríl.

Sigrún Grendal verður formaður félagsins á komandi kjörtímabili en hún var ein í kjöri til formanns.