Sjö bjóða sig fram til setu í stjórn FL

Fréttir|21. febrúar 2014

Nýtt kjörtímabil (2014 – 2017) Félags leikskólakennara hefst í kjölfar aðalfundar FL sem haldinn verður 25. apríl nk. Í lögum FL er kveðið á um að stjórn félagsins skuli kjörin í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna, formaður er kjörinn sérstaklega. Eitt framboð barst frá núverandi formanni, Haraldi Frey Gíslasyni og er hann því sjálfkjörinn.

Sjö félagsmenn gefa kost á sér til setu í stjórn. Þeir eru: Dýrleif Skjóldal Akureyri, Fjóla Þorvaldsdóttir Kópavogi, Friðbjörg Eyrún Sigvaldadóttir Akranesi, Hallgerður Gunnarsdóttir Reykjavík , Hanna Berglind Jónsdóttir Akureyri, Heiða Ingólfsdóttir Reykjanesbæ og Laufey Heimisdóttir Hveragerði. Atkvæðamagn ræður því hverjir verða kjörnir aðalmenn og hverjir varamenn.

Kjörstjórn FL undirbýr nú atkvæðagreiðslu sem mun fara fram með rafrænum hætti dagana 6. mars til 10. mars nk. Nánari upplýsingar frá kjörstjórn munu berast til allra félagsmanna þegar nær dregur.

Kynningu á frambjóðendum er að finna HÉR

Í önnur trúnaðarstörf verður kosið á aðalfundi. Frambjóðendur í þau störf verða kynntir á heimasíðu síðar.