Skapandi kennsluaðferðir dýpka skilning

Fréttir|12. október 2026
FRÆ

Rannveig Björk Þorkelsdóttir er prófessor í leiklist við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún hefur um árabil rannsakað hlutverk leiklistar í skólastarfi, mikilvægi listmenntunar og hvernig skapandi kennsluaðferðir geta eflt nám, tjáningu og félagsfærni barna og ungmenna.

Annað FRÆ-erindi haustsins var frumsýnt þriðjudaginn 6. október. Þar fjallaði Rannveig Björk um mikilvægi skapandi greina í kennslu, með sérstakri áherslu á leiklist.

„Með því að nota aðferðir leiklistar í kennslu er maður að samþætta námsgreinar, listgreinar og skapandi starf í heildstætt ferli fyrir kennara að nýta sér í samþættingu við aðrar námsgreinar. Við getum notað þessar aðferðir inn í því námsefni sem við erum að kenna, við þurfum ekki að gera neitt auka þegar við notum aðferðir leiklistar. Með þessum erum við bara að dýpka skilning nemenda á því námsefni sem unnið er með hverju sinni,“ segir Rannveig Björk.

Í myndbandinu kynnir Rannveig Björk ýmsar einfaldar og skapandi kennsluaðferðir, svo sem kyrrmyndir, spuna og skuggaleikhús.

Rannveig vekur jafnframt sérstaka athygli á vefsíðunni leikumaflist.com, þar sem finna má hafsjó af efni um skapandi kennsluaðferðir og heildstæð ferli leiklistar sem allir geta nýtt sér.

FRÆ: Skapandi kennsluaðferðir

Rannveig Þorkelsdóttir, prófessor á Menntavísindasviði, fjallar um skapandi kennsluaðferðir og hvernig þær geta eflt nám, tjáningu og félagsfærni barna.