Skapandi leikskólastarf í leikskólanum Mánahvoli

Fréttir|8. október 2024
Faghópur um skapandi leikskólastarf

Þriðjudaginn 22. október nk. kl. 17-19 verður viðburðurinn Skapandi leikskólastarf í leikskólanum Málahvoli, við Vífilstaðaveg í Garðabæ. Mánahvoll er átta deilda leikskóli sem opnaði 1. nóvember 2021. Lögð er áhersla á upplifun, skynjun og útiveru í þessari stórkostlegu útivistarparadís sem er í nágrenni skólans. Gildi leikskólans eru samvinna, traust, sköpun og gleði og eru þau leiðarljós í starfinu með börnunum, foreldrum og starfsfólki Mánahvols. Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum.

Þriðjudaginn 22. október nk. kl. 17-19 verður viðburðurinn Skapandi leikskólastarf í leikskólanum Málahvoli, við Vífilstaðaveg í Garðabæ. Mánahvoll er átta deilda leikskóli sem opnaði 1. nóvember 2021. Í Mánahvoli starfa reynslumiklir og metnaðarfullir leikskólakennarar og leiðbeinendur sem hafa lagt grunninn að starfinu.
Lögð er áhersla á upplifun, skynjun og útiveru í þessari stórkostlegu útivistarparadís sem er í nágrenni skólans.
Lykillinn að góðu leikskólastarfi er góð samvinna og jákvætt viðmót.Gildi skólans eru samvinna, traust, sköpun og gleði og eru þau leiðarljós í starfinu með börnunum, foreldrum og starfsfólki Mánahvols.

Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum.