Skapandi leikskólastarf í Marbakka í Kópavogi

Faghópur um skapandi leikskólastarf heldur ótrauður áfram að bjóða upp á viðburði undir yfirskriftinni Skapandi leikskólastarf. Nú er komið að leikskólanum Marbakka í Kópavogi þriðjudaginn 17. janúar kl. 17-19. Setjið dagsetninguna strax í dagbókina, óþarft er að skrá sig, bara mæta á ókeypis viðburð og njóta samvista við annað áhugafólk um skapandi leikskólastarf.

Leikskólinn Marbakki er fimm deilda skóli sem er staðsettur í íbúðarhverfi við sjávarsíðuna og ber nafn eftir því. Leikskólinn er fyrir börn frá eins árs aldri.
Einkunarorð leikskólans eru sjálfstæð, glöð og skapandi börn og unnið er eftir vinnuaðferð Reggio Emilia í starfinu með börnunum sem byggir á hugmyndafræði Loris Malaguzzi.
Við munum fá kynningu á þeirri gerjun á starfsaðferðum Reggio Emilia sem á sér stað núna í Marbakka og gestum boðið að flæða um leikskólann og taka samtal við starfsmenn.