Skapandi leikskólastarf í Múlaborg

Þriðjudaginn 18. febrúar kl. 17-19 verður viðburðurinn Skapandi leikskólastarf í leikskólanum Múlaborg, Ármúla 6-8a, 108 Reykjavík. Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum. Frá árinu 1998 hefur Múlaborg verið leikskóli án aðgreiningar sem sérhæfir sig í sameiginlegu uppeldi fatlaðra og ófatlaðra barna. Árið 2022 var tekið í notkun viðbótarhúsnæði. Múlaborg er sjö deilda leikskóli þar sem 128 börn á aldrinum eins til sex ára dvelja samtímis. Í leikskólanum Múlaborg hefur verið mikið unnið með skynörvun barna. Verkefnin ná til úti- og inniveru og allra námsþátta í leikskólastarfi. Árið 2024 fékk leikskólinn Múlaborg Hvatningarverðlaun Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur og Orðsporið 2024.
Þriðjudaginn 18. febrúar kl. 17-19 verður viðburðurinn Skapandi leikskólastarf í leikskólanum Múlaborg, Ármúla 6-8a, 108 Reykjavík. Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum.
Frá árinu 1998 hefur Múlaborg verið leikskóli án aðgreiningar sem sérhæfir sig í sameiginlegu uppeldi fatlaðra og ófatlaðra barna. Árið 2022 var tekið í notkun viðbótarhúsnæði. Stækkunin var einn liður í framkvæmdaáætluninni Brúum bilið sem miðar að því að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Múlaborg er sjö deilda leikskóli þar sem 128 börn á aldrinum eins til sex ára dvelja samtímis.
Múlaborg vinnur með hugmyndafræði John Dewey um reynslu, áhuga og virkni sem og fjölgreindarkenningu Howard Garner. Leikskólinn nýtir einnig fræði Jean Piaget og Lev Vygotsky um uppbyggingu þekkingar. Múlaborg er skóli án aðgreiningar - Skóli fyrir alla þar sem lögð er áhersla á jafnrétti í víðu samhengi sem felst m.a. í því að jafna rétt kvenna og karla en líka í því að einstaklingar með og án fötlunar geti fengið að njóta þess að læra, vinna og vera saman. Í Múlaborg er fagfólki og öðrum áhugasömum veitt ráðgjöf vegna kennslu barna með fötlun.
Í leikskólanum Múlaborg hefur verið mikið unnið með skynörvun barna. Verkefnin ná til úti- og inniveru og allra námsþátta í leikskólastarfi. Verkefnin eru mjög ólík en meðal annars er unnið með mismunandi áferðir, lyktarskyn, bragðskyn og sjónskyn. Margt er skemmtilegt en það að vinna með raksápu, ull, vatn, tættan pappír, hveiti, hrísgrjón, ljós, skjávarpa og myndvarpa slær alltaf í gegn. Stöðugt bætist í verkefnasafnið, tækni og ljós eru orðin stór partur af þessari vinnu. Lögð er áhersla á að öll börnin geti tekið þátt ALLTAF. Starfsfólk Múlaborgar vill hvetja öll til að kynna sér óhefðbundnar leik- og námsleiðir, það er hvetjandi, gefandi og gerir viðveru barna og vinnu starfsmanna fjölbreytta og skemmtilega.
Þess má að lokum geta að árið 2024 fékk leikskólinn Múlaborg Hvatningarverðlaun Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur og Orðsporið 2024. Að Orðsporinu standa Félag leikskólakennara, Félag stjórnenda leikskóla, mennta- og barnamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli á Degi leikskólans ár hvert.
