Skapandi leikskólastarf í Skarðshlíðarleikskóla

Fréttir|31. október 2023
Faghópur um skapandi leikskólastarf

Miðvikudaginn 15. nóvember nk. kl. 17-19 verður viðburðurinn Skapandi leikskólastarf í Skarðshlíðarleikskóla í Hafnarfirði í boði Faghóps um skapandi leikskólastarf. Skarðshlíðarleikskóli var formlega opnaður 9. ágúst 2019. Leikskólinn rúmar fjórar deildir þar sem gert er ráð fyrir að um 80 börn geti dvalið samtímis. Meginmarkmið Skarðshlíðaleikskóla er að vinna í anda fjölgreindakenningu Howards Gardner.  Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum.

Miðvikudaginn 15. nóvember nk. kl. 17-19 verður viðburðurinn Skapandi leikskólastarf í Skarðshlíðarleikskóla, Hádegisskarði 1 í 221 Hafnarfirði (sjá kort) í boði Faghóps um skapandi leikskólastarf.
Skarðshlíðarleikskóli var formlega opnaður 9. ágúst 2019. Leikskólinn rúmar fjórar heimastofur/deildir, Hraun, Hól, Lyng og Laut, þar sem gert er ráð fyrir að um 80 börn geti dvalið samtímis. Meginmarkmið Skarðshlíðaleikskóla er að vinna í anda fjölgreindakenningu Howards Gardner, Uppeldi til ábyrgðar og er áhersla lögð á að við séum öll, börn, foreldrar og starfsmenn, hluti af lærdómssamfélagi. Unnið er markvisst með Vináttuverkefni Barnaheill, en það er forvarnarverkefni gegn einelti. Áhersla er á læsi í samræmi við læsisstefnu Hafnarfjarðar, Lestur er lífsins leikur. Skarðshlíðarleikskóli leggur áherslu á lýðræði, frumkvæði og lífsgleði í daglegum samskiptum og að börnin læri í gegnum leik og flæðandi starf. Það er okkar trú að leikurinn sé besta námsleið barna. 
Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum.