Skapandi leikskólastarf í Urriðabóli

Fimmtudaginn 23. janúar kl. 17-19 verður viðburðurinn Skapandi leikskólastarf í heilsuleikskólanum Urriðabóli, nýbyggingu sem stendur við Holtsveg í Garðabæ. Leikskólinn er samrekinn af Skólum ehf. ásamt fyrri byggingu Urriðabóls sem er rétt fyrir neðan þessa glæsilegu byggingu í Kauptúni (við hliðina á Costco). Það er nú varla við hæfi að segja eldri bygging, en leikskólinn var opnaður í september 2022. Nýja byggingin er afar falleg, Hulda Jónsdóttir er arkitekt leikskólans og það var verktakafyrirtækið Þarfaþing ehf. sem byggði leikskólann. Mjög er vandað til verka og má sjá þar margar frábærar nýjungar í hönnun leikskólabyggingar. Heilsuefling er höfð að leiðarljósi í einu og öllu í starfi heilsuleikskólanna og auk þess að starfa í anda Heilsustefnunnar eru allir leikskólar Skóla ehf. þátttakendur í verkefninu „Heilsueflandi leikskóli“ í samvinnu við Embætti landlæknis. Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum.
Fimmtudaginn 23. janúar kl. 17-19 verður viðburðurinn Skapandi leikskólastarf í heilsuleikskólanum Urriðabóli, sem stendur við Holtsveg í Garðabæ. Leikskólinn er samrekinn af Skólum ehf. ásamt fyrri byggingu Urriðabóls sem er rétt fyrir neðan þessa glæsilegu byggingu í Kauptúni (við hliðina á Costco). Það er nú varla við hæfi að segja eldri bygging, en leikskólinn var opnaður í september 2022.
Nýja byggingin er afar falleg, Hulda Jónsdóttir er arkitekt leikskólans og það var verktakafyrirtækið Þarfaþing ehf. sem byggði leikskólann. Mjög er vandað til verka og má sjá þar margar frábærar nýjungar í hönnun leikskólabyggingar. Sem dæmi má nefna að notaðir eru litir til þess að auðvelda leiðina á hverja deild fyrir sig. Byggingin er Svansvottuð og krefst það þess m.a. að ákveðið birtustig á að vera innandyra og því þurfti að bæta við loftagluggum hér og þar.
Skólar ehf. leggja megin áherslu á Heilsueflandi leikskóla. Heilsustefnan er byggð á heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur, heitinnar, fyrrum leikskólastjóra í Skólatröð í Kópavogi. „Heilbrigð sál í hraustum líkama“ eru einkunnarorð leikskólanna og unnið er með markvissum hætti að bættri líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu og velferð barnanna. Heilsuefling er höfð að leiðarljósi í einu og öllu í starfi heilsuleikskólanna og auk þess að starfa í anda Heilsustefnunnar eru allir leikskólar Skóla ehf. þátttakendur í verkefninu „Heilsueflandi leikskóli“ í samvinnu við Embætti landlæknis.
Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum.
