Skilaboð Illuga voru engin

Fréttir|2. apríl 2014

Ræða Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra, á þingi KÍ í gær olli kennurum vonbrigðum. Þetta kemur fram í fréttabréfi FF og FS, Verkfallseplinu, sem kom út fyrr í dag.

Í Verkfallseplinu segir að ráðherrann hafi ekki haft mikið fram að færa. „Ekki var vikið einu orði að slæmum starfsskilyrðum kennara, allt frá leikskóla upp í framhaldsskóla, og hraksmánarlegum kjörum þeirra. Ekki var vikið einu orði að verkfalli 1.800 félaga úr kennarastétt í FF og FS og ekki var vikið einu orði að því að yfir 20.000 nemendur séu nú verklausir og geti ekki stundað nám sitt. Flestum fundargestum fannst sem þeir hefðu heyrt ræðu Illuga áður þar sem hann talaði um læsi, brottfall, væntanlega hvítbók og píanóleik,“ segir í fréttabréfi FF og FS. 

Þá er gagnrýnt að Illugi hafi ekki gefið sér tíma til að hlusta á ræðu formanns KÍ, Þórðar Hjaltested. „Er nema von að kennarar leiti að Illuga. Ráðherra sem ekki hefur neitt til málanna að leggja og gefur sér ekki tíma til að hlusta á kennara nær ekki samstöðu með þeim. Er nema von að kennarar kalli eftir aðkomu menntamálayfirvalda og segi: „Hvar er Illugi?“, segir jafnframt í fréttabréfinu.