Skrifstofa KÍ lokuð á meðan þing stendur yfir
Fréttir|14. apríl 2026

Níunda þing Kennarasambandsins hefst á morgun, miðvikudag og stendur fram á föstudag.
Skrifstofa Kennarasambands Íslands verður lokuð dagana 15. til 17. apríl. Níunda þing KÍ fer fram umrædda daga og verður starfsfólk KÍ við störf á þinginu.
Félagsfólki er bent á fyrirspurnarkerfið á Mínum síðum.
Þá er félagsfólki sem þarf að ná sambandi við Orlofssjóð KÍ bent á að senda tölvupóst á orlof@ki.is. Erindum verður svarað svo hratt sem auðið er.