Skynörvun á SETT

Í apríl s.l. fóru nokkrir kennarar og stjórnendur skóla á SETT ráðstefnu í Stokkhólmi sem hefur stundum verið kölluð sænska BETT. Þetta er ráðstefna þar sem boðið er upp á mjög góða fyrirlestra og framleiðendur koma á framfæri vörum til þess að nýta í skólastarfi. Þetta er ráðstefna fyrir þá sem vilja fá hvatningu og innblástur í kennslu. Á SETT ráðstefnunni er hægt að kanna hvernig hægt er að sameina rannsóknir, reynslu og ýmis námstæki til að takast á við þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í skólastarfi.

Sett hefur verið leiðandi fundarstaður kennara, menntafólks og skólastjórnenda frá árinu 2012 og á tímum hraðra samfélagsbreytinga og vaxandi óvissu í heiminum í kringum okkur er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að standa sterkur í starfi.
Af hverju erum við að vekja athygli á þessari ráðstefnu, jú af því að þetta er ráðstefna sem getur svo sannarlega hentað leikskólafólki hér á landi.
Hildur Rudólfsdóttir verkefnastjóri í Mixtúru sýndi okkur bækling frá fyrirtækinu Lekolar sem framleiðir gífurlegt magn af kennslugögnum fyrir skynupplifun. Í blaðinu eru kynntar ótrúlegar mikill fjöldi af búnaði sem hentar leikskólum. Á heimasíðu Lekolar er einnig að finna umfjallanir um gerð skynupplifunarherbergja, mjög áhugavert.
Á heimasíðu SETT kemur fram að næsta ráðsefna verður í Stokkhólmi 6-7. apríl 2027 og hvetjum við leikskólafólk til að hugleiða þátttöku.