Söguleg samstaða um jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu

Fréttir|7. ágúst 2026
Viljayfirlýsing

Stjórnvöld, aðilar vinnumarkaðarins og Samtökin ’78 sameina krafta sína til að efla jafnrétti og öryggi hinsegin fólks á vinnumarkaði. Viljayfirlýsing var undirrituð við hátíðlega athöfn í dag.

Félags- og húsnæðismálaráðherra, fulltrúi dómsmálaráðherra og forystufólk Alþýðusambands Íslands (ASÍ), BHM, BSRB, Kennarasambands Íslands (KÍ), Samtaka atvinnulífsins (SA) og Samtakanna ’78 undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um aukið samstarf í þágu jafnréttis, fjölbreytileika og inngildingar á íslenskum vinnumarkaði.

Með undirrituninni, sem fór fram í lok viðburðarins Hýr vinnumarkaður í Iðnó, skuldbinda aðilar sig til að vinna markvisst að því að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði.

Öruggur, inngildandi og fordómalaus vinnumarkaður

Rannsóknir sýna að þrátt fyrir skýran lagaramma um jafna meðferð upplifir hinsegin fólk enn í auknum mæli mismunun, fordóma og verri líðan á vinnumarkaði en aðrir hópar. Sérstaklega á það við um trans- og kynsegin fólk.

Markmið samstarfsins er að efla þekkingu, stuðla að öryggi og vellíðan starfsfólks og þróa úrræði sem styðja við inngildandi starfsumhverfi. Aðilar eru sammála um að jafnrétti og fjölbreytileiki eru mannréttindi og stuðla að betri árangri vinnustaða og sterkara samfélagi.

 

Aðgerðahópur mun leiða verkefnið áfram

Sem hluti af samstarfinu verður stofnaður aðgerðahópur sem fær það hlutverk að vinna að fræðsluefni, aðgerðum og rannsóknum.

Hópurinn mun byggja starf sitt á rannsóknum og greiningum á stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði, sem og þeirri reynslu og þekkingu sem safnast hefur í gegnum Hinsegin vottun Samtakanna ’78 og leiðbeiningar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um inngildandi vinnustaði.

 

Mikilvægt skref í átt að inngildandi vinnumarkaði

Aðilar viljayfirlýsingarinnar telja að aukið jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding skili ávinningi fyrir starfsfólk, vinnustaði og samfélagið allt. Með undirrituninni er stigið mikilvægt skref í átt að vinnumarkaði þar sem öll njóta virðingar og öryggis og sömu tækifæra.

 

Undirritendur viljayfirlýsingarinnar eru

  • Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra
  • Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrir hönd dómsmálaráðherra
  • Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ’78
  • Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands
  • Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
  • Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands
  • Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM
  • Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB

 

Viljayfirlýsing Hinsegin Dagar (2)