Sprotasjóður veitir styrki til 37 verkefna

Fréttir|15. apríl 2014

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2014 til 2015. Alls bárust 124 umsóknir til sjóðsins og var heildarfjárhæð umsókna rúmar 259 milljónir króna. Veittir voru styrkir til 37 verkefna að fjárhæð tæplega 50 milljónir króna. 

Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

  • Áherslusvið sjóðsins voru að þessu sinni:
  • Árangursríkt læsi alla skólagönguna: Að skilja og nýta upplýsingar á fjölbreyttan hátt
  • Verklegir kennsluhættir á öllum námssviðum og mat á hæfni nemenda
  • Afburðanemendur

Stjórn sjóðsins, sem skipuð er fulltrúum frá Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samstarfsnefnd háskólastigsins og mennta- og menningarmálaráðuneyti, mat umsóknir og gerði tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra um styrkveitingar. Hægt er að kynna sér hverjir fengu styrki hér.