Stíf fundahöld

Fréttir|3. mars 2014

Framhaldsskólakennarar hafa kosið að fara í verkfall verði ekki samið við þá fyrir 17. mars næstkomandi. Í ljósi þess vill Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, koma eftirfarandi á framfæri:

Stíf fundarhöld eru í gangi við að reyna að finna sameiginlegan flöt á málunum. Svo verður áfram. Engu að síður er langt á milli aðila.
Stærsta vandamálið við kjarasamningsgerðina er að framhaldsskólarnir eru í raun komnir í fjárhagslegt þrot. Sú erfiða staða er teiknuð ansi skýrt upp í nýlegri skýrslu ríkisendurskoðunar. Þar kemur fram að framlög til skólanna hafa rýrnað um rúma tvo milljarða á árabilinu 2008 og 2012 eða um tæp 13%.

Á sama ári og bæði kjarasamningsgerð stendur fyrir dyrum og talað er um nýjan framhaldsskóla sem bjóði upp á fjölbreytt nám við hæfi nemenda og sem geti sinnt fjölbreytilegum þörfum þeirra er staðreyndin samt sem áður sú að fjárveitingar til skólanna eru minnkaðar um 1350 milljónir í fjárlögum á þessu ári. Nú er svo komið að útilokað er að skólarnir geti haldið úti starfi í samræmi við lög og reglur.

Það er hins vegar ekki á valdi samningsaðila að semja um auknar fjárveitingar til skólanna heldur eru ákvarðanir um það teknar af Alþingi og stjórnvöldum. Þar þarf að taka ákvörðun um að bregðast þegar við ástandinu og stækka fjárhagsramma skólanna.