Stjórn KÍ ályktar um kjaradeilu framhaldsskólakennara
„Stjórnarfundur KÍ haldinn 28. mars 2014 harmar að Félag framhaldsskólakennara og Félag stjórnenda í framhaldsskólum hafi þurft að grípa til þess neyðarúrræðis að boða verkfall meðal sinna félagsmanna. Stjórn sambandsins áréttar fyrri skoðun sína að ábyrgð vinnudeilunnar hvílir fyrst og fremst á herðum stjórnvalda," svo hefst ályktun stjórnar Kennarasambands Íslands sem var samþykkt á stjórnarfundi í morgun.
„Aðildarfélög KÍ geta ekki lengur unað við þá staðreynda að laun kennara séu meðal þeirra lægstu í hópi sambærilegra sérfræðinga á vinnumarkaði. Stjórnin skorar enn og aftur á stjórnvöld að stíga fram og veita samninganefnd ríkisins umboð til að mæta réttmætum kröfum kennara og stjórnenda í framhaldsskólum. Það er mikilvægt að þessi deila leysist sem fyrst svo hún valdi ekki meiri truflun á námi nemenda en nú þegar er orðið," segir í ályktuninni.