Stöndum með kennurum

Kennaradeginum er fagnað í dag, mánudag, 5, október. Þetta er í 33. skipti sem haldið er upp á daginn á heimsvísu. Um leið eru tilmæli UNESCO og ILO frá árinu 1966 um stöðu kennara.
Kennaradeginum er fagnað í dag, mánudag, 5, október. Þetta er í 33. skipti sem haldið er upp á daginn á heimsvísu. Um leið eru tilmæli UNESCO og ILO frá árinu 1966 um stöðu kennara.
Aþjóðadagur kennara verður að venju haldinn hátíðlegur 5. október. Kennaradeginum er nú fagnað í 33. skipti en hann hefur verið árlegur viðburður frá árinu 1994. Ástæðan fyrir því að fimmti október var valinn sem kennaradagur er að þá þeim degi árið 1966 samþykktu UNESCO og Alþjóðavinnumálastofunin (ILO) hin mikilvægu tilmæli um stöðu kennara. Tilmælin eru því sextíu ára og hafa Alþjóðasamtök kennara (EI) bent á að fullt tilefni sé að fagna kennarastéttinni en um leið endurnýja skuldbindingar um réttindi, stöðu, faglegt sjálfræði, starfsskilyrði og velferð kennara um allan heim.
EI hafa gefið út yfirskrift kennaradagsins 2026 en þau hljóða svo:
Stöndum með kennurum! Í 60 ár höfum við staðið vörð um kennarastarfið, eflt stöðu þess og mótað framtíðina saman.
„Á sama tíma og kennaraskortur fer vaxandi, opinber menntakerfi eiga í vök að verjast og kennarar standa frammi fyrir sífellt fleiri og flóknari áskorunum í starfi er kennaradagurinn mikilvæg stund til að berjast fyrir faglegri stefnumörkun og fjárfestingu í menntamálum til að styrkja kennara og tryggja rétt allra nemenda til gæðamenntunar," segir í frétt á vef EI.
En um hvað fjölluðu tilmælin árið 1966? Í þeim var skilgreining á réttindum og skyldum kennara sem varða eftirtalin atriði:
- Grunn- og símenntun kennara
- Faglegt sjálfræði
- Starfsskilyrði
- Laun og starfsöryggi
- Þátttöku kennara í stefnumótun á sviði menntamála
- Félagslegt samtal og kjarasamninga
„Sextíu árum síðar hefur framtíðarsýn þeirra enn ekki orðið að veruleika," segir í yfirlýsingu EI. Þar segir jafnframt að kennarar glími enn við of mikið álag í starfi, ófullnægjandi launakjör, skort á akademísku frelsi og kennaraskort. „Alþjóðadagur kennara 2026 er tækifæri til að skora á stjórnvöld að innleiða að fullu meginreglur tilmælanna frá 1966 og tryggja að kennsla sé virt, eftirsóknarverð og sjálfbær starfsgrein."
Að efla stöðu kennara krefst kynjajafnréttis
Alþjóðadagur kennara í ár ætti einnig að beina kastljósinu að grundvallarstaðreynd: konur eru í meirihluta kennarastéttarinnar á heimsvísu," segir EI. „Konur í kennarastétt eru burðarásar menntakerfa. Samt verða margar þeirra enn fyrir mismunun, ofbeldi og áreitni, lágum launum, ójöfnum aðgangi að stjórnunarstöðum og hindrunum í starfsframa.
Kennarasamband Íslands hvetur kennara, skólastjórnendur, námsráðgjafa og starfsfólk skólanna til að halda upp á kennaradaginn á mánudag. Tilvalið er að vekja athygli á fjölbreyttu og faglegu starfi sem unnið er í skólum landsins árið um kring.
