Stórkostlegt síðdegi í leikskólanum Jörfa

Fréttir|22. janúar 2026
IMG 3422 (1)

Mikið rosalega var gaman í leikskólanum Jörfa á viðburðinum skapandi leikskólastarf. Það var mikið fjölmenni sem mætti (170) og hafði gaman saman. Mikið var um knús og kossa því þarna hittust margir fyrrum samstarfsfélagar. Við eigum svo gott leikskólasamfélag hér á landi sem hefur ánægju af því að hittast og auka þekkingu sína á leikskólastarfi. Það var svo sannarlega í boði þetta góða síðdegi í Jörfa.

Mikið rosalega var gaman í leikskólanum Jörfa á viðburðinum skapandi leikskólastarf. Það var mikið fjölmenni sem mætti (170) og hafði gaman saman. Mikið var um knús og kossa því þarna hittust margir fyrrum samstarfsfélagar. Við eigum svo gott leikskólasamfélag hér á landi sem hefur ánægju af því að hittast og auka þekkingu sína á leikskólastarfi. Það var svo sannarlega í boði þetta góða síðdegi í Jörfa. 

Vessela Dukova leikskólastjóri og Sanja Líf Markovic listasmiðjustjóri kynntu leikskólann og sögðu frá starfinu í listasmiðjunni. Það var mjög áhugavert að heyra frá innleiðingu hugmyndafræði Reggio Emilia í leikskólanum. En frá því að Vessela hóf störf haustið 2024 hefur staðið yfir innleiðing á hugmyndafræðinni. Það má alveg sjá í Jörfa að tekist hefur vel að breyta starfsumhverfi barna og starfsmanna. Umhverfið leikur mikilvægt hlutverk í námi barnanna. Það ýtir undir rannsóknarvinnu og sköpun barna. Þessi hugmyndafræði dregur fram að vel skipulagt umhverfi getur stutt við nám með því að vera hvetjandi og opið fyrir ýmsum aðferðum. Á öllum deildum leikskólans er áhersla á skapandi starf þar sem ýtt er undir jákvæða sjálfsmynd og sjálfstæði barnanna í gegnum listgreinar og rannsóknir. 


Listasmiðjan í Jörfa er einstök. Þar hefur Sanja Líf af miklum eldmóði skapað ævintýralega veröld þar sem börnin fá að nota öll skilningarvit í gegnum listir og leik. Sanja Líf hefur þann hátt á að vikulega setur hún upp ákveðið þema, þessa stundina er einmitt þorra þema. Hún viðar að sér skapandi efni héðan og þaðan og með útsjónarsemi tekst henni að búa til stórkostlegt umhverfi. Öll börn leikskólans renna í gegnum starfið í listasmiðjunni á viku. Starfsfólk deildanna fylgir með og lærir af tilraunum og rannsóknum barnanna.

Þátttakendum gafst svo tækifæri til að ganga um báðar starfsstöðvar leikskólans. Litla Jörfa og Stóra Jörfa. Langflestir nýttu tækifærið og fengu sér göngutúr í Litla Jörfa. Litli Jörfi var opnaður eftir heildarendurnýjun í september í fyrra og er Svansvottaður. Áður hýsti húsið leikskólann Garðaborg og eiga margir leikskólakennarar minningar þaðan. Með Litla Jörfa bættust við tvær ungbarnadeildir og er Jörfi í dag sjö deilda leikskóli með fimm aldurshópa. 

Leiðarljós Jörfa er gleði, sköpun og virðing. 

Við tókum að vanda fjölmargar ljósmyndir og er hægt að skoða þær hér.