Styrkir til náms- og þjálfunar í menntun

Fréttir|12. mars 2014

Stofnanir sem sinna menntun á öllum skólastigum geta sótt um ferða-, uppihalds- og námsstyrki fyrir nemendur og starfsfólk til að sinna námi, starfsnámi eða starfsþjálfun í einu af þátttökulöndum Erasmus+.

Áætlunin á við eftirfarandi hópa:

  • Nemendur í starfsmenntun og á háskólastigi (nám og starfsnám á vinnustað).
  • Starfsfólk leik-, grunn- og framhaldsskóla, stofnana og fyrirtækja til kennslustarfa eða starfsþjálfunar.

Nú er opið fyrir umsóknir um styrki til náms- og þjálfunarferða. Umsóknarfrestur í þennan flokk er 17. mars 2014 - klukkan 11:00 f.h.