Styrkir til rannsókna og þróunarverkefna
Fréttir|21. febrúar 2014
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands auglýsir styrki til félagsmanna sinna sem vinna að rannsóknum, þróunarverkefnum og nýbreytni í kennsluháttum í grunnskólum skólaárið 2014-2015. Einungis er hægt að sækja um rafrænt á Mínum síðum, sjá tengil á forsíðu KÍ, til og með 28. febrúar 2014. Öll fylgiskjöl þurfa að fylgja með ræfrænni umsókn þar sem ekki er tekið við gögnum eftir á. Sjá reglur hér.
Kærar kveðjur,
Verkefna- og námsstyrkjasjóður FG og SÍ