„Styrkurinn felst í samstöðunni, sameinuð getum við flutt fjöll“
Baráttuhugur og samstaða einkenndu fjölsóttan baráttufund framhaldsskólakennara sem fram fór í Verkfallsmiðstöðinni í Framheimilinu fyrr í dag. Um fimm hundruð manns sóttu fundinn og auk þess fylgdust um þrjú hundruð manns með fundinum í verkfallsmiðstöðvum víða um land, en fundurinn var sendur út á netinu.
Guðríður Arnardóttir, nýkjörinn formaður FF, ávarpaði fundinn og sagði framhaldsskólakennara ekki ætla að búa við það lengur að láta skammta sér smánarlaun sem væru lægri en allra annarra hópa með sömu menntun í samfélaginu. „Við ætlum að standa á rétti okkar og snúum ekki til starfa fyrr en laun okkar hafa verið leiðrétt og við fengið sanngjarnar og eðlilegar kjarabætur eins og aðrar vinnandi stéttir í þessu landi.“
Guðríður gerði hugmyndir um styttingu námstíma til stúdentsprófs að umtalsefni. Hún sagði kennara þurfa að berjast fyrir því að innihald náms verði ekki skert í sparnaðarskyni og um leið skoraði hún á menntamálaráðherra að taka þátt í vandaðri og yfirvegaðri umræðu um íslenska framhaldsskóla og kalla að borðinu sérfræðingana – framhaldsskólakennarana. „Við höfum góða málstað að verja og finnum að samfélagið stendur með okkur. Styrkurinn felst í samstöðunni, sameinuð getum við flutt fjöll,“ sagði Guðríður Arnardóttir.
Tími kominn til að brýna raustina
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur flutti tölu á fundinum og hvatti framhaldsskólakennara til dáða í baráttunni fyrir bættum kjörum. Hann sagði stundum talað um að verkföll skiluðu engu og sjálfur hefði hann hugsað þannig líka. En þegar horft væri á þróun íslensks samfélags í gegnum tíðina væri ljóst að ekkert sem íslensk alþýða náði fram á 20. öldinni í bættum kjörum fékkst án baráttu. Hann sagði það grimma staðreynd að íslenskt samfélag væri frekjusamfélag þar þeir sem hæst létu fengju mest. „Þess vegna er kominn tími til að þið ræskið ykkur, brýnið raustina og látið í ykkur heyra og sækið ykkar rétt,“ sagði Guðmundur Andri.
Aðalheiður Steingrímsdóttir, oddviti samninganefndar FF, sagði sinnuleysi stjórnvalda til margra ára um launakjör í framhaldsskólum og margendurtekinn og grófan niðurskurð á fjármunum til skólastigsins vera alvarlegt samfélagsmein. Þess vegna hefðu framhaldsskólakennarar sagt stopp, hingað og ekki lengra!
Aðalheiður sagði brýnt að yfirvöld öxluðu ábyrgð í samningaviðræðunum. „Við sendum þá skýlausu kröfu frá þessum baráttufundi til menntamálaráðherra og fjármálaráðherra að þeir leggi sig alla fram og geri allt sem í þeirra valdi stendur til að fulltrúar ríkisins í samninganefnd fái meiri heimildir en verið hafa til að ganga strax til samninga við okkur um leiðréttingar á launum og aukna fjármuni til skólanna til að endurreisa innra starfið.“
Hægt er að horfa á upptöku af fundinum á netsamfelag.is.