Sumargjöf auglýsir styrki

Fréttir|17. janúar 2014

Barnavinafélagið Sumargjöf auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna, lista og þróunarverkefna sem geta nýst börnum á leik- og grunnskólaaldri. Umsókn ásamt greinargerð um verkefnið skal senda fyrir 14. febrúar 2014.

Stjórn Barnavinafélagsins Sumargjafar áskilur sér rétt til að óska eftir nánari upplýsingum um verkefnið og fjármögnun þess og leita umsagnar fagaðila.

Umsóknir skal senda til Barnavinafélagsins Sumargjafar, Pósthólf 5423, 125 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið: sumargjof@simnet.is.