Tekur samfélagið mið af margbreytileika fjölskyldugerða

Fréttir|9. janúar 2014

Föstudaginn 17. janúar nk. stendur Velferðarvaktin fyrir málþingi, í samstarfi við velferðarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Heimili og skóla, Kennarasamband Íslands og Félag stjúpfjölskyldna, undir heitinu Tekur samfélagið mið af margbreytileika fjölskyldugerða?

Málþingið verður haldið í Bratta, húsi menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð kl. 12:30 til 16:10. Húsið opnar kl. 12 og dagskrá hefst kl. 12:30. Fundarstjóri er Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður. Aðgangseyrir er 1.800 kr. og hér er hægt að skoða dagskrá. Síðasti skráningardagur er 15. janúar.

Velferðarvaktin er óháður álitsgjafi sem leggur fram tillögur til stjórnvalda og hagsmunasamtaka.