Það verður hverjum að list sem hann leikur

Fréttir|12. mars 2014

Lifandi starfsþróun – árangursríkt skólastarf er yfirskrift árlegrar vorráðstefnu miðstöðvar skólaþróunar Háskólans á Akureyri sem fram fer 5. apríl næstkomandi.

Í lýsingu á ráðstefnunni segir að skólastarf sé lifandi og síbreytilegt, háð innri og ytri þáttum sem hafa áhrif á möguleika til eflingar og þróunar þeirra sem þar starfa. „Horft er til þess að þróun skóla sem stofnana og starfsþróun kennara fari saman og þeirri spurningu velt upp hvað einkennir árangursríkt skólastarf,“ segir í kynningu.

Efni ráðstefnunnar er sniðið að leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum.

Aðalfyrirlesarar verða dr. Kari Smith, prófessor við háskólann í Bergen í Noregi, Jón Torfi Jónasson, prófessor við kennaradeild Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Sigurður Kristinsson, prófessor við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri.

Auk aðalfyrirlestra verður fjölbreytt dagskrá, svo sem málstofur þar sem reifuð verða ýmis mál er lúta að starfsþróun og árangursríku skólastarfi.