Þátttaka í formannskjöri 35 prósent
Fréttir|28. janúar 2026

Kosningar til formanns og stjórnar Félags framhaldsskólakennara standa yfir. Hægt er að kjósa til klukkan tíu í fyrramálið.
Alls höfðu 34,67 prósent tekið þátt í kosningu til formanns Félags framhaldsskólakennara klukkan tíu í morgun. Þátttaka í stjórnarkjöri var 29,71 prósent á sama tíma.
Atkvæðagreiðslan hófst á mánudagsmorgun og henni lýkur klukkan tíu í fyrramálið, fimmtudaginn 29. janúar.
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.