Þing KÍ ályktar um samningamál
Sjötta þing Kennarasambands Íslands samþykkti í dag ályktun um stöðu samningamála og er skorað á Samband íslenskra sveitarfélaga að ganga strax og af alvöru í að leiðrétta laun félagsmanna KÍ. Ályktunin er svohljóðandi:
Ályktun um stöðu samningamála
„Nú þegar ljóst er að verið er að ganga frá kjarasamningum við Félag framhaldsskólakennara og Félag stjórnenda í framhalsskólum, skorar sjötta þing Kennarasambands Íslands á Samband íslenskra sveitarfélaga og samninganefnd þeirra að ganga strax og af alvöru í að leiðrétta laun félagsmanna KÍ í leik-, grunn- og tónlistarskólum.
Kennarar á öllum skólastigum/skólagerðum eru sérfræðingar í mismunandi greinum og fræðasviðum. Árið 2008 voru samþykkt lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla. Þar segir að einungis þeir sem lokið hafa meistaraprófi frá háskóla sem hlotið hefur viðurkenningu ráðherra á grundvelli laga um háskóla, nr. 63/2006 hafi rétt til að kalla sig leik-, grunn- eða framhaldskólakennara og starfa við skóla á vegum opinberra aðila eða aðra hliðstæða skóla. Það sama gildir um tónlistarskóla¬kennara..
Kennarar eru sérfræðingar og það sama á við um skólastjórnendur og náms- og starfsráðgjafa sem starfa innan skólanna. Löggjafinn hefur viðurkennt að kennsla hafi verið vanmetin og að kennarastarfið hafi breyst það mikið að nauðsynlegt sé að kennarar ljúki fimm ára meistaranámi. Félagsmenn KI bera laun sín saman við þá sem hafa sambærilega menntun og vinna sem sérfræðingar á vinnumarkaði.
Það er óverjandi að kennarar þurfi með reglulegu millibili, vegna sinnuleysis yfirvalda, að beita aðgerðum til að knýja fram sanngjarnar launaleiðréttingar. Samkvæmt skýrslu SALEK (Samstarfsnefndar um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga) eru grunnlaun framhaldsskólakennara um 17% lægri en samanburðarhópa hjá ríkinu. Grunnlaun leik-, tónlistar- og grunnskólakennara um 30% lægri en sambærilegra hópa hjá sveitarfélögunum og um 34% lægri sé miðað við þá sem starfa hjá ríkinu.
Við þetta verður ekki unað. Þingið skorar á alla sem láta sig skólastarf varða, ekki síst rekstraraðila skóla að taka höndum saman um að laun og starfskjör félagsmanna í KÍ standist ávallt samanburð við kjör annarra sérfræðinga og stjórnenda á vinnumarkaði. Einungis þannig verða skólarnir samkeppnishæfir um vinnuafl og aðsókn í kennaranám mun aukast."
Samþykkt á þingi KÍ 4. apríl 2014.