Þjóðirnar þrjár í útnorðri stilla saman strengi

Forystufólk kennarasambanda í Færeyjum, á Grænlandi og Íslandi fundaði hér á landi í liðinni viku. Kennarasambandið skipulagði fundinn og voru skóla- og menntamál í löndunum þremur rædd frá ýmsum sjónarhornum.
Við tókum ákvörðun um það haustið 2023 að setja upp sérstakan hóp landanna í vesturhluta Norðurlanda og voru ástæðurnar aðallega tvær. Annars vegar það að þessi lönd búa við mjög lík viðfangsefni þegar kemur að skólakerfunum, bæði er kemur að umgjörð og verkefnum ólíkra skólagerða í hverju samfélagi. Hins vegar er það sú staðreynd að þessi lönd fá samtals jafn mörg atkvæði innan Norrænu kennarasamtakanna, NLS, og hvert hinna fjögurra stóru. Við mátum það svo að til að ná enn sterkari rödd við það borð væri mikilvægt að við stilltum oftar og betur saman strengi,“ segir Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ.
Fyrir hönd Kennarasambandsins sátu fundina Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, og Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF.
Sanna á Løgmansbø og Birita Hammer Jacobson voru fulltrúar Føroya Pedagofelag en innan þess eru kennarar og leiðbeinendur í leikskólum. Sanna gegnir formennsku í félaginu og Birita er framkvæmdastjóri.
Jacob Eli S. Olsen, formaður Føroya Lærarafelag, sótti einnig fundinn. Føroya Lærarafelag samsvarar Félagi grunnskólakennara hérlendis. Þá kom Maria Chun Nielsdóttir, formaður Yrkisfelagid miðnám, einnig á fundinn en félagið er skipað kennurum á framhaldsskólastigi.
Fulltrúar Grænlands voru Elna Thomsen Heilmann, formaður IMAK, Grænlenska kennarasambandsins, og skrifstofustjóri þess, Simon Lennert.
Fundir stóðu yfir í þrjá daga og var komið saman í höfuðstöðvum KÍ við Borgartún en einnig var fundað á Snæfellsnesi þar sem erlendu fulltrúarnir fengu að njóta náttúrufegurðar í sérlega fallegu veðri.
Færeysku fulltrúarnir heimsóttu tvo leikskóla í Reykjavík, Ævintýraborg í Vogabyggð og Ungbarnaleikskólann Hallgerðargötu.
Þá var Menntaskóli Borgarfjarðar sóttur heim og í Snæfellsbæ fékk allur hópurinn góðar móttökur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Grunnskóla Snæfellsbæjar og í Leikskóla Snæfellsbæjar, nánar tiltekið í Krílakoti og Kríubóli.
„Fundurinn var afar vel heppnaður. Verkefnið var tilraun til þriggja ára og við ákváðum að leggja til að UTNORD-samstarfið verði nú fastur þáttur í starfi samtaka hvers landanna. Við höfum mikinn hug á að auka tengslin við vestnorrænu þingsamtökin sem eru svo tenging inn í Norðurlandaráð og horfum líka til þess að eiga samstarf þegar kemur að skólaþróun og vinna að eflingu umgjarðar skólastarfs í vesturhlutanum“, segir Magnús Þór.
Kennarasambandið þakkar fyrir frábærar móttökur í skólunum sem voru heimsóttir.