Tónlist með yngstu börnunum

Fréttir|17. mars 2026
Tonlist
Faghópur um skapandi leikskólastarf

Fimmtudaginn 12. mars hélt Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir fyrirlestur um mikilvægi tónlistar fyrir yngstu börnin og leiðir til þess að flétta tónlistariðkun inn í daglegt starf á yngstu deildum leikskólans. Það var vel mætt bæði í streymi og í sal. Helga Rut er stofnandi og ábyrgðarmaður Tónagulls  sem eru námskeið fyrir ung börn og foreldra þeirra. Hún sagði frá því að hugmyndin með námskeiðunum hjá Tónagulli sé að opna augu fólks fyrir tónlistariðkun.

Fimmtudaginn 12. mars hélt Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir fyrirlestur um mikilvægi tónlistar fyrir yngstu börnin og leiðir til þess að flétta tónlistariðkun inn í daglegt starf á yngstu deildum leikskólans. Það var vel mætt bæði í streymi og í sal. 
Helga Rut er stofnandi og ábyrgðarmaður Tónagulls  sem eru námskeið fyrir ung börn og foreldra þeirra. Hún sagði frá því að hugmyndin með námskeiðunum hjá Tónagulli sé að opna augu fólks fyrir tónlistariðkun. Þátttaka á slíkum námskeiðum hefur ýmis jákvæð áhrif á börnin og hafa rannsóknir sýnt að tónlist hefur afgerandi áhrif á þróun heilans. Í gegnum tónlistariðkun eflist til dæmis málhljóðagreining barna löngu áður en þau læra stafina. Þá er talið að breytingar í heilanum vegna tónlistariðkunar hafi áhrif á einbeitingu og athyglisfærni. 
Fyrirlestur Helgu Rutar var einstaklega hagnýtur og má sjá í skjákynningu hennar dæmi um uppbyggingu tónlistarstundar í leikskóla. 

Takk kærlega Helga Rut fyrir frábæran fyrirlestur og ráð til starfsfólks á yngstu deildum leikskólans. 

Namskeid