Tónlistariðkun í daglegu starfi á yngstu deildunum leikskólans

Fimmtudaginn 12. mars nk. kl. 15:30 til 16:45 býður Faghópur um skapandi leikskólastarf upp á skemmtilegan fyrirlestur um mikilvægi tónlistar fyrir yngstu börnin og leiðir til þess að flétta tónlistariðkun inn í daglegt starf á yngstu deildum leikskólans. Fyrirlesturinn verður í húsnæði Kennarasambands Íslands, Borgartúni 30, 105 Reykjavík og í beinu streymi. Öll áhugasöm eru velkomin og það er ókeypis, engin ástæða til að skrá sig bara að mæta og hafa gaman. Fyrirlesari er Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir Prófessor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, stofnandi og ábyrgðarmaður Tónagulls.
Fimmtudaginn 12. mars nk. kl. 15:30 til 16:45 býður Faghópur um skapandi leikskólastarf upp á skemmtilegan fyrirlestur um mikilvægi tónlistar fyrir yngstu börnin og leiðir til þess að flétta tónlistariðkun inn í daglegt starf á yngstu deildum leikskólans. Fyrirlesturinn verður í húsnæði Kennarasambands Íslands, Borgartúni 30, 105 Reykjavík. Öll áhugasöm eru velkomin og það er ókeypis, engin ástæða til að skrá sig bara að mæta og hafa gaman.
Fyrirlesari er Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir Prófessor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, stofnandi og ábyrgðarmaður Tónagulls.
Helga Rut segir að hugmyndin með námskeiðunum hjá Tónagulli sé að opna augu fólks fyrir tónlistariðkun. Þátttaka á slíkum námskeiðum hefur ýmis jákvæð áhrif á börnin og hafa rannsóknir sýnt að tónlist hefur afgerandi áhrif á þróun heilans. Í gegnum tónlistariðkun eflist til dæmis málhljóðagreining barna löngu áður en þau læra stafina. Þá er talið að breytingar í heilanum vegna tónlistariðkunar hafi áhrif á einbeitingu og athyglisfærni. Helga Rut, doktor í tónlistarfræði hóf árið 2004 að halda tónlistarnámskeið fyrir foreldra og ung börn.
