Tónlistarskólinn í Reykjavík sigursæll á Nótunni 2014
Lokahátíð Nótunnar í Hörpu; Farandgripur Nótunnar 2014 og Tóngjafinn fór til Tónlistarskólans í Reykjavík
Andrés Helgason, eigandi Tónastöðvarinnar veitti viðurkenninguna Tóngjafann. Andrés hefur stutt dyggilega við hátíðina frá upphafi.
Ásta Dóra Finnsdóttir fékk hvatningarverðlaun Töfrahurðar fyrir einleik sinn á píanó.
Rjómakvartettinn, strengjakvartett frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, hlaut farandgrip Nótunnar á uppskeruhátíð tónlistarskóla 2014 sem lauk um síðustu helgi í Hörpu. Þetta er í þriðja skipti sem farandgripurinn er veittur, og í öll skiptipin hefur Tónlistarskólinn í Reykjavík hreppt hann.
Sem besta atriði hátíðarinnar fékk kvartettinn viðurkenninguna Tóngjafann frá Tónastöðinni og gjafabréf upp á 150 þús. kr. Allir meðlimir kvartettsins hófu Suzuki tónlistarnám við 3-5 ára aldur en þau hafa spilað saman frá því í haust undir leiðsögn Guðnýjar Guðmundsdóttur. Kvartettinn flutti verkið GET DOWN!, strengjakvartett í jazz-stíl eftir Árna Egilsson.
Hvatningarverðlaun Töfrahurðar
Ásta Dóra Finnsdóttir frá Allegro Suzukitónlistarskólanum fékk hvatningarverðlaun Töfrahurðar fyrir einleik sinn á píanó. Töfrahurð tónlistarhátíð veitir einum framúrskarandi þátttakanda í grunnnámi á Nótunni hvatningarverðlaun með greiðslu skólagjalda næstkomandi skólaár vegna tónlistarnáms viðkomandi. Verðlaunin eru veitt nemanda í grunnnámi í anda starfsemi Töfrahurðar. Ásta Dóra Finnsdóttir er 7 ára gömul og á sínu þriðja námsári í píanóleik. Hún hóf nám við Tónlistarskólann á Álftanesi en er nú í Allegro Suzukitónlistarskólanum.
Um 200 tónlistarnemendur spiluðu í Hörpu
Á tvennum tónleikum lokahátíðar Nótunnar voru flutt 24 tónlistaratriði frá 18 tónlistarskólum víðs vegar af landinu en um hundrað tónlistarnemendur komu fram á sviði Eldborgar. Að auki ómaði tónlist í opnu rými Hörpu á milli viðburða í boði hundrað tónlistarnemenda þar til viðbótar.
Tíu framúrskarandi tónlistaratriði fengu verðlaunagrip Nótunnar 2014
Á lokaathöfn Nótunnar voru tíu framúrskarandi tónlistaratriði verðlaunuð með Nótunni 2014 í fjórum þátttökuflokkum hátíðarinnar. Eftirfarandi atriði í grunnnámi fengu viðurkenningu: sampilshópur frá Tónlistarskóla Vopnafjarðar, Njáll Halldórsson frá Tónlistarskóla Þórshafnar fyrir harmónikkuleik, Oddný Þórarinsdóttir frá Listaskóla Mosfellsbæjar fyrir einleik á fiðlu og Ásta Dóra Finnsdóttir frá Allegro Suzukitónlistarskólanum fyrir einleik á píanó en hún fékk einnig Hvatningarverðlaun Töfrahurðar.
Viðurkenningu í miðnámi fékk blásarasextett frá Skólahljómsveit Kópavogs.
Í opnum flokki fengu tvö atriði viðurkenningu: Saxófónhópur með slagverki frá Tónlistarskóla Garðabæjar og rytmískt tríó frá Tónlistarskólanum á Akureyri.
Viðurkenningar í framhaldsnámi fengu klarínettukvartett frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Arnar Ingi Richardsson frá Tónlistarskóla FÍH fyrir einsöng og strengjakvartett frá Tónlistarskóla Reykjavíkur sem einnig hlaut heiðurstitilinn besta atriði Nótunnar 2014.
Pamela De Sensi er stjórnandi Töfrahurðar. Myndir: Styrmir Kári Erwinsson.