Tvö ný sumarhús á bókunarvef
Fréttir|7. mars 2014
Orlofssjóður hefur tekið tvö ný hús á leigu, annað í Helgafellssveit nálægt Stykkishólmi og hitt á Blönduósi, og var opnað fyrir bókanir í þau 1. mars síðastliðinn.
Birkilundur í Helgafellssveit er 10 km frá Stykkishólmi og er 59 fm auk 20 fm svefnlofts. Gisting fyrir 6-8 manns.
Sumarhús 21, Brautarhvammur, á Blöndusúsi er 56 fermetrar með gistingu fyrir 6 manns.
Hægt er að leiga húsin á bókunarsíðu Orlofssjóðs á Mínum síðum.