Tvö orlofshús í boði í Stykkishólmi

Fréttir|9. júní 2026

Félagsfólk KÍ getur nú bókað tvær orlofseignir í Stykkishólmi.

Opnað hefur verið fyrir bókanir í tvær orlofseignir í Stykkishólmi. 

Önnur eignin er hið sögufræga hús Berghóll, sem margir félagsmenn þekkja vel. Húsið hefur verið í útleigu hjá Orlofssjóði KÍ undanfarin ár og notið mikilla vinsælda. Undanfarið hefur Berghóll ekki verið í leigu vegna smávægilegra viðhaldsframkvæmda, en er nú klár fyrir gesti á ný. Húsið er í boði frá 10. júní til 26. ágúst í fastar vikuleigur.

Hin eignin er glæný viðbót við eignasafn sjóðsins. Um er að ræða rúmgóða íbúð í nýlegu raðhúsi við Hjallatanga sem Orlofssjóður KÍ keypti nýverið. Íbúðin er vel búin og þar er gistirými fyrir 6–7 manns. Opnað verður fyrir bókanir frá 25. júní og út sumarið. Nú þegar hefur verið opnað fyrir bókanir í eigninni á hausttímabilinu. Hjallatangi verður í dagsleigum og hægt að dvelja í 2-7 nætur eftir hentugleika.

Hvorug eignin er með heitum potti en sundlaugin í bænum er afar góð. 

Stykkishólmur er einn af fallegustu bæjum landsins og býður upp á fjölbreytta afþreyingu allt árið um kring. Þar má njóta einstakrar náttúru, heimsækja söfn og veitingastaði, fara í gönguferðir eða siglingar um Breiðafjörð.